Títusarbréfið 1:1–16
1 Frá Páli, þjóni Guðs og postula Jesú Krists. Trú mín og postuladómur er í samræmi við trú útvalinna þjóna Guðs og nákvæma þekkingu á sannleikanum sem samræmist guðrækninni.
2 Hún byggist á von um eilífa lífið sem Guð lofaði endur fyrir löngu en hann getur ekki logið.
3 Á tilsettum tíma opinberaði Guð, frelsari okkar, orð sitt með boðuninni sem mér var trúað fyrir í samræmi við fyrirmæli hans.
4 Til Títusar sem er mér ósvikinn sonur í sameiginlegri trú okkar:
Megi Guð faðirinn og Kristur Jesús, frelsari okkar, sýna þér einstaka góðvild og veita þér frið.
5 Ég skildi þig eftir á Krít til að taka á því sem var í ólagi* og útnefna öldunga í borg eftir borg í samræmi við leiðbeiningar mínar.
6 Öldungur má ekki liggja undir ámæli, hann á að vera einnar konu eiginmaður, börn hans eiga að vera í trúnni og ekki vera sökuð um taumleysi* eða uppreisn.
7 Sem ráðsmaður Guðs má umsjónarmaður ekki liggja undir ámæli, ekki vera þrjóskur, ekki skapbráður, ekki drykkfelldur, ekki ofbeldismaður og ekki sólginn í efnislegan ávinning.
8 Hann á öllu heldur að vera gestrisinn, elska hið góða, vera skynsamur,* réttlátur og trúr og hafa góða stjórn á sjálfum sér.
9 Hann á að halda sig fast við hið áreiðanlega orð* þegar hann kennir til að geta bæði uppörvað* með því að kenna það sem er heilnæmt* og áminnt þá sem andmæla því.
10 Margir eru uppreisnargjarnir, blaðra út í bláinn og blekkja aðra, sérstaklega þeir sem aðhyllast umskurð.
11 Það þarf að þagga niður í þeim því að þeir kollvarpa trú heilla fjölskyldna. Þannig reyna þeir að hagnast á óheiðarlegan hátt.
12 Kríteyingur nokkur, þeirra eigin spámaður, sagði: „Kríteyingar ljúga stöðugt, eru óargadýr og latir mathákar.“
13 Þetta eru orð að sönnu. Þess vegna skaltu halda áfram að ávíta þá harðlega til að þeir verði heilbrigðir í trúnni
14 og séu ekki uppteknir af þjóðsögum Gyðinga og boðum manna sem snúa baki við sannleikanum.
15 Allt er hreint í augum þeirra sem eru hreinir, en í augum þeirra sem eru óhreinir og trúlausir er ekkert hreint því að bæði hugur þeirra og samviska er óhrein.
16 Út á við segjast þeir þekkja Guð en þeir afneita honum með verkum sínum. Þeir eru fyrirlitlegir, óhlýðnir og óhæfir til allra góðra verka.
Neðanmáls
^ Eða „ábótavant“.
^ Eða „svall“.
^ Eða „hafa góða dómgreind“.
^ Eða „hinn áreiðanlega boðskap“.
^ Eða „hvatt“.
^ Eða „gagnlegt“.