Matteus 28:1–20
28 Eftir hvíldardaginn, þegar birti á fyrsta degi vikunnar, komu María Magdalena og María hin til að líta á gröfina.
2 Mikill jarðskjálfti hafði orðið því að engill Jehóva* hafði stigið niður af himni, velt steininum frá og sat nú á honum.
3 Hann var eins og elding að sjá og fötin snjóhvít.
4 Varðmennirnir skulfu af hræðslu þegar þeir sáu hann og voru lamaðir af ótta.
5 En engillinn sagði við konurnar: „Verið óhræddar. Ég veit að þið eruð að leita að Jesú sem var staurfestur.
6 Hann er ekki hér því að hann hefur verið reistur upp eins og hann sagði. Komið og sjáið staðinn þar sem hann lá.
7 Farið síðan sem skjótast og segið lærisveinunum að hann sé risinn upp frá dauðum. Hann fer á undan ykkur til Galíleu og þar fáið þið að sjá hann. Munið hvað ég hef sagt ykkur.“
8 Þær flýttu sér þá burt frá gröfinni,* óttaslegnar en mjög glaðar, og hlupu af stað til að færa lærisveinunum fréttirnar.
9 Jesús kom á móti þeim og sagði: „Sælar!“ Þær fóru til hans, féllu fram fyrir honum, gripu um fætur hans og veittu honum lotningu.
10 Jesús sagði þá við þær: „Verið óhræddar. Farið og segið bræðrum mínum frá svo að þeir fari til Galíleu og þar munu þeir sjá mig.“
11 Meðan þær voru á leiðinni fóru nokkrir af varðmönnunum inn í borgina og sögðu yfirprestunum frá öllu sem hafði gerst.
12 Yfirprestarnir söfnuðust þá saman ásamt öldungunum og báru saman ráð sín. Þeir gáfu síðan hermönnunum talsvert fé*
13 og sögðu: „Segið að lærisveinar hans hafi komið um nótt og stolið honum meðan þið sváfuð.
14 Og ef landstjórinn fréttir þetta skulum við útskýra málið fyrir honum* svo að þið getið verið áhyggjulausir.“
15 Þeir tóku þá við fénu* og gerðu eins og þeim var sagt, og þessi saga hefur verið borin út meðal Gyðinga allt fram á þennan dag.
16 En lærisveinarnir 11 fóru til Galíleu, til fjallsins þar sem Jesús hafði sagt að þeir skyldu hittast.
17 Þegar þeir sáu hann veittu þeir honum lotningu* en sumir efuðust.
18 Jesús gekk til þeirra og sagði: „Mér hefur verið gefið allt vald á himni og jörð.
19 Farið því og gerið fólk af öllum þjóðum að lærisveinum, skírið það í nafni föðurins, sonarins og heilags anda
20 og kennið því að halda öll fyrirmæli mín. Og munið að ég er með ykkur alla daga allt þar til þessi heimsskipan* endar.“*
Neðanmáls
^ Sjá orðaskýringar.
^ Eða „minningargröfinni“.
^ Eða „töluvert mikið af silfurpeningum“.
^ Orðrétt „tala hann til“.
^ Eða „silfurpeningunum“.
^ Eða „krupu þeir fyrir honum“.
^ Eða „öld“. Sjá orðaskýringar.
^ Eða „allt fram á lokaskeið þessarar heimsskipanar“.