Matteus 5:1–48
5 Þegar Jesús sá mannfjöldann gekk hann upp á fjallið. Hann settist niður og lærisveinarnir komu til hans.
2 Síðan fór hann að kenna þeim og sagði:
3 „Þeir sem skynja andlega þörf sína* eru hamingjusamir því að himnaríki tilheyrir þeim.
4 Þeir sem syrgja eru hamingjusamir því að þeir hljóta huggun.
5 Hinir hógværu* eru hamingjusamir því að þeir erfa jörðina.
6 Þeir sem hungrar og þyrstir eftir réttlæti eru hamingjusamir því að þeir verða saddir.
7 Hinir miskunnsömu eru hamingjusamir því að þeim verður sýnd miskunn.
8 Hinir hjartahreinu eru hamingjusamir því að þeir munu sjá Guð.
9 Þeir sem stuðla að friði* eru hamingjusamir því að þeir verða kallaðir börn* Guðs.
10 Þeir sem hafa verið ofsóttir fyrir að gera rétt eru hamingjusamir því að himnaríki tilheyrir þeim.
11 Þið eruð hamingjusöm þegar fólk smánar ykkur, ofsækir og lýgur upp á ykkur öllu illu vegna mín.
12 Gleðjist og fagnið ákaflega því að laun ykkar eru mikil á himnum. Þannig ofsóttu þeir líka spámennina á undan ykkur.
13 Þið eruð salt jarðar en hvernig er hægt að endurheimta seltuna ef saltið dofnar? Það er ekki lengur nothæft til neins annars en að henda því út þar sem það er troðið undir fótum.
14 Þið eruð ljós heimsins. Ekki er hægt að fela borg sem stendur á fjalli.
15 Fólk kveikir ekki á lampa og setur hann undir körfu* heldur á ljósastand og þá lýsir hann öllum í húsinu.
16 Eins skuluð þið láta ljós ykkar lýsa meðal manna svo að þeir sjái góð verk ykkar og lofi föður ykkar sem er á himnum.
17 Haldið ekki að ég sé kominn til að afnema lögin eða spámennina.* Ég kom ekki til að afnema heldur uppfylla.
18 Trúið mér, það er líklegra að himinn og jörð líði undir lok en að einn smástafur eða stafkrókur hverfi úr lögunum áður en allt er komið fram.
19 Hver sem því brýtur eitt minnsta boðorð þeirra og kennir öðrum að gera það verður óhæfur til að ganga inn í himnaríki.* En hver sem heldur þau og kennir verður hæfur til að ganga inn í himnaríki.*
20 Ég segi ykkur að ef þið eruð ekki réttlátari en fræðimenn og farísear komist þið alls ekki inn í himnaríki.
21 Þið hafið heyrt að sagt var við forfeðurna: ‚Þú skalt ekki myrða, en sá sem fremur morð þarf að svara til saka fyrir dómi.‘
22 En ég segi ykkur að hver sem elur með sér reiði í garð bróður síns þarf að svara til saka fyrir dómi og sá sem eys svívirðingum yfir bróður sinn þarf að svara til saka fyrir Hæstarétti. En sá sem segir: ‚Þú fyrirlitlegi heimskingi!‘ á yfir höfði sér að lenda í eldi Gehenna.*
23 Sértu því að koma með fórn þína að altarinu og manst þá að bróðir þinn hefur eitthvað á móti þér
24 skaltu skilja fórnina eftir fyrir framan altarið. Farðu fyrst og sæstu við bróður þinn. Komdu síðan aftur og færðu fórnina.
25 Vertu fljótur að sættast við þann sem höfðar mál gegn þér. Gerðu það meðan þið eruð á leiðinni í réttinn svo að hann dragi þig ekki fyrir dómarann og dómarinn afhendi þig réttarþjóninum og þér verði varpað í fangelsi.
26 Ég segi þér að þú losnar alls ekki þaðan fyrr en þú hefur greitt upp skuldina, hvern einasta eyri.*
27 Þið hafið heyrt að sagt var: ‚Þú skalt ekki fremja hjúskaparbrot.‘
28 En ég segi ykkur að hver sem horfir á konu þannig að hann fer að girnast hana hefur þegar framið hjúskaparbrot með henni í hjarta sínu.
29 Ef hægra augað verður þér að falli skaltu rífa það úr þér og henda því burt. Það er betra fyrir þig að missa einn líkamshluta en að öllum líkama þínum verði kastað í Gehenna.*
30 Og ef hægri hönd þín verður þér að falli skaltu höggva hana af og henda henni burt. Það er betra fyrir þig að missa einn útlim en að allur líkami þinn lendi í Gehenna.*
31 Enn fremur var sagt: ‚Hver sem skilur við konu sína skal gefa henni skilnaðarbréf.‘
32 En ég segi ykkur að hver sem skilur við konu sína nema vegna kynferðislegs siðleysis* setur hana í þá hættu að fremja hjúskaparbrot, og hver sem giftist fráskilinni konu fremur hjúskaparbrot.
33 Þið hafið einnig heyrt að sagt var við forfeðurna: ‚Þú skalt ekki sverja án þess að halda eiðinn heldur skaltu efna heit þín við Jehóva.‘*
34 En ég segi ykkur: Þið eigið alls ekki að sverja, hvorki við himininn, því að hann er hásæti Guðs,
35 né við jörðina, því að hún er fótaskemill hans, né við Jerúsalem því að hún er borg hins mikla konungs.
36 Þú átt ekki að sverja við höfuð þitt því að þú getur ekki gert eitt hár hvítt eða svart.
37 Láttu bara ‚já‘ þitt merkja já og ‚nei‘ þitt nei því að allt þar fyrir utan er frá hinum vonda.
38 Þið hafið heyrt að sagt var: ‚Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn.‘
39 En ég segi ykkur: Streitist ekki á móti vondum manni. Ef einhver slær þig á hægri kinnina skaltu líka snúa hinni kinninni að honum.
40 Vilji einhver draga þig fyrir dómstól og hafa af þér kyrtilinn skaltu líka láta hann hafa yfirhöfnina
41 og ef maður í valdastöðu þvingar þig* með sér eina mílu* skaltu fara með honum tvær.
42 Gefðu þeim sem biður þig og vísaðu ekki frá þeim sem vill fá lán* hjá þér.
43 Þið hafið heyrt að sagt var: ‚Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn.‘
44 En ég segi ykkur: Elskið óvini ykkar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja ykkur
45 þannig að þið reynist börn* föður ykkar á himnum því að hann lætur sólina skína bæði á vonda og góða og rigna bæði yfir réttláta og rangláta.
46 Hvaða laun hljótið þið ef þið elskið þá sem elska ykkur? Gera ekki skattheimtumenn það sama?
47 Og hvað er merkilegt við það ef þið heilsið bara bræðrum ykkar? Gerir ekki fólk af þjóðunum það sama?
48 Þið skuluð því vera fullkomin eins og faðir ykkar á himnum er fullkominn.
Neðanmáls
^ Eða „Þeir sem betla andann; Þeir sem skilja að þeir þarfnast Guðs“.
^ Eða „mildu“.
^ Eða „Hinir friðsömu“.
^ Orðrétt „synir“.
^ Eða „mæliker“.
^ Þegar talað er um „lögin og spámennina“ er átt við Hebresku ritningarnar í heild.
^ Orðrétt „verður kallaður minnstur í himnaríki“.
^ Orðrétt „verður kallaður mikill í himnaríki“.
^ Staður fyrir utan Jerúsalem þar sem sorp var brennt. Sjá orðaskýringar.
^ Orðrétt „síðasta kvadransinn“.
^ Sjá orðaskýringar.
^ Sjá orðaskýringar.
^ Á grísku pornei′a. Sjá orðaskýringar.
^ Sjá orðaskýringar.
^ Eða „þvingar þig til þjónustu“.
^ Sjá orðaskýringar.
^ Það er, vaxtalaust lán.
^ Orðrétt „synir“.