Fyrri Kroníkubók 10:1–14
-
Sál og synir hans deyja (1–14)
10 Filistear herjuðu nú á Ísrael. Ísraelsmenn flúðu undan þeim en margir voru felldir á Gilbóafjalli.+
2 Filistear eltu Sál og syni hans og drápu Jónatan, Abínadab og Malkísúa+ syni Sáls.
3 Sál átti nú í vök að verjast. Bogaskytturnar komu auga á hann, hæfðu hann og særðu.+
4 Þá sagði Sál við skjaldsvein sinn: „Dragðu sverð þitt og rektu mig í gegn. Annars koma þessir óumskornu menn og fara hrottalega með mig.“+ En skjaldsveinninn vildi það ekki því að hann var lafhræddur. Sál tók þá sverð sitt og lét sig falla á það.+
5 Þegar skjaldsveinninn sá að Sál var dáinn lét hann sig líka falla á sverð sitt og dó.
6 Þannig dóu Sál og synir hans þrír og öll ætt hans í einu.+
7 Þegar Ísraelsmönnum í dalnum* varð ljóst að allir voru flúnir og Sál og synir hans dánir yfirgáfu þeir borgir sínar og flúðu. Filistear komu síðan og settust að í þeim.
8 Daginn eftir, þegar Filistear komu til að ræna þá sem höfðu fallið, fundu þeir lík Sáls og sona hans á Gilbóafjalli.+
9 Þeir rændu hann, hjuggu af honum höfuðið og klæddu hann úr herklæðunum.* Síðan sendu þeir menn um allt land Filistea til að flytja skurðgoðum sínum+ og fólkinu fréttirnar.
10 Þeir lögðu herklæði hans í hof guðs síns og festu upp hauskúpu hans í hofi Dagóns.+
11 Þegar íbúarnir í Jabes+ í Gíleað fréttu af öllu sem Filistear höfðu gert við Sál+
12 lögðu allir hermenn borgarinnar af stað, sóttu lík Sáls og sona hans og fluttu þau til Jabes. Síðan grófu þeir bein þeirra undir stóra trénu í Jabes+ og föstuðu í sjö daga.
13 Sál dó af því að hann hafði svikið Jehóva og óhlýðnast fyrirmælum Jehóva.+ Auk þess hafði hann leitað svara hjá andamiðli+
14 í stað þess að ráðfæra sig við Jehóva. Hann lét hann því deyja og gaf Davíð Ísaísyni konungdóminn.+