Fyrri Kroníkubók 11:1–47

  • Ísraelsmenn smyrja Davíð til konungs (1–3)

  • Davíð hertekur Síon (4–9)

  • Stríðskappar Davíðs (10–47)

11  Að nokkrum tíma liðnum söfnuðust allir Ísraelsmenn saman hjá Davíð í Hebron+ og sögðu: „Við erum hold þitt og bein.+  Áður fyrr, þegar Sál var konungur, varst það þú sem fórst fyrir Ísrael í hernaði.+ Jehóva Guð þinn sagði við þig: ‚Þú verður hirðir þjóðar minnar, Ísraels. Þú verður leiðtogi yfir þjóð minni, Ísrael.‘“+  Þegar allir öldungar Ísraels voru komnir til konungsins í Hebron gerði Davíð sáttmála við þá frammi fyrir Jehóva í Hebron. Síðan smurðu þeir Davíð til konungs yfir Ísrael+ eins og Jehóva hafði sagt fyrir milligöngu Samúels.+  Nokkru síðar hélt Davíð og allur Ísrael til Jerúsalem, það er Jebús,+ en þar bjuggu Jebúsítar.+  Íbúar Jebús hæddust að Davíð og sögðu: „Þú kemst aldrei hingað inn!“+ En Davíð tók virkið Síon+ sem er nú kallað Davíðsborg.+  Davíð hafði sagt: „Sá fyrsti sem ræðst á Jebúsíta verður foringi og hershöfðingi.“ Jóab+ Serújuson fór fyrstur upp og varð foringi.  Davíð settist síðan að í virkinu. Þess vegna var það nefnt Davíðsborg.  Hann hófst handa við að byggja umhverfis borgina, frá Milló* og allt í kring, en Jóab endurreisti aðra hluta borgarinnar.  Davíð efldist sífellt meir+ og Jehóva hersveitanna var með honum. 10  Þetta eru fremstu stríðskappar Davíðs. Þeir ásamt öllum Ísrael hjálpuðu honum að komast til valda og gerðu hann að konungi eins og Jehóva hafði lofað Ísrael.+ 11  Þetta er skrá yfir stríðskappa Davíðs: Jasóbeam+ sonur Hakmóníta, höfðingi hinna þriggja.+ Einu sinni sveiflaði hann spjóti sínu og drap yfir 300 menn.+ 12  Næstur honum var Eleasar,+ sonur Dódós Ahóhíta.+ Hann var einn af stríðsköppunum þrem. 13  Hann var með Davíð í Pas Dammím+ þar sem Filistear höfðu safnast saman til orrustu. Þar var byggakur. Liðið hafði flúið undan Filisteum 14  en hann tók sér stöðu á miðjum akrinum, varði hann og felldi Filisteana. Þannig veitti Jehóva mikinn sigur.+ 15  Einu sinni fóru þrír af höfðingjunum 30 niður að klettinum, til Davíðs í Adúllamhelli,+ en hersveit Filistea hafði þá slegið upp búðum í Refaímdal.*+ 16  Davíð var í fjallavíginu en Filistear voru með setulið í Betlehem. 17  Þá sagði Davíð: „Ég vildi óska að ég gæti fengið vatn að drekka úr brunninum við borgarhliðið í Betlehem.“+ 18  Mennirnir þrír brutust þá inn í herbúðir Filistea og sóttu vatn í brunninn við borgarhliðið í Betlehem. Þeir færðu Davíð vatnið en Davíð vildi ekki drekka það heldur hellti því niður frammi fyrir Jehóva. 19  Hann sagði: „Það kemur ekki til greina að ég geri þetta því að það væri rangt í augum Guðs míns. Á ég að drekka blóð þessara manna sem hættu lífi sínu?+ Þeir lögðu líf sitt í hættu til að sækja það.“ Þess vegna vildi hann ekki drekka vatnið. Þetta gerðu kapparnir þrír. 20  Abísaí+ bróðir Jóabs+ fór fyrir öðru þríeyki. Einu sinni sveiflaði hann spjóti sínu og drap yfir 300 menn. Hann var jafn frægur og þrír bestu stríðskappar Davíðs.+ 21  Hann skaraði fram úr í þríeykinu sem hann fór fyrir en jafnaðist þó ekki á við kappana þrjá. 22  Benaja+ Jójadason var hugrakkur maður* sem vann mörg þrekvirki í Kabseel.+ Hann drap báða syni Aríels frá Móab og eitt sinn þegar snjóaði fór hann ofan í gryfju og drap þar ljón.+ 23  Hann drap líka risavaxinn Egypta sem var fimm álnir á hæð.*+ Egyptinn var með spjót í hendi sem var eins svert og þverslá í vefstól+ en Benaja fór á móti honum með staf, hrifsaði spjótið úr hendi hans og drap hann með hans eigin spjóti.+ 24  Þetta gerði Benaja Jójadason. Hann var jafn frægur og þrír bestu stríðskappar Davíðs. 25  Hann skaraði fram úr hinum þrjátíu en jafnaðist þó ekki á við kappana þrjá.+ Davíð setti hann yfir lífvarðarsveit sína. 26  Stríðskappar hersins voru Asael+ bróðir Jóabs, Elkanan, sonur Dódós frá Betlehem,+ 27  Sammót Haróríti, Heles Pelóníti, 28  Íra,+ sonur Íkkess frá Tekóa, Abíeser+ frá Anatót, 29  Sibbekaí+ Húsatíti, Ílaí Ahóhíti, 30  Maharaí+ Netófatíti, Heled,+ sonur Baana Netófatíta, 31  Íttaí, sonur Ríbaí frá Gíbeu í Benjamín,+ Benaja Píratoníti, 32  Húraí frá flóðdölum* Gaas,+ Abíel frá Bet Araba, 33  Asmavet frá Bahúrím, Eljahba Saalbóníti, 34  synir Hasems Gísoníta, Jónatan, sonur Sage Hararíta, 35  Ahíam, sonur Sakars Hararíta, Elífal Úrsson, 36  Hefer Mekeratíti, Ahía Pelóníti, 37  Hesró Karmelíti, Naaraí Esbaíson, 38  Jóel bróðir Natans, Míbhar Hagríson, 39  Selek Ammóníti, Nahraí frá Beerót, skjaldsveinn Jóabs Serújusonar, 40  Íra Jítríti, Gareb Jítríti, 41  Úría+ Hetíti, Sabad Ahlaíson, 42  Adína, sonur Sísa Rúbeníta og höfðingi Rúbeníta, og 30 manns með honum, 43  Hanan Maakason, Jósafat Mitníti, 44  Ússía frá Astarót, Sama og Jeíel, synir Hótams frá Aróer, 45  Jedíael Simríson og Jóha Tísíti, bróðir hans, 46  Elíel Mahavíti, Jeríbaí og Jósavja Elnaamssynir, Jítma Móabíti, 47  Elíel, Óbeð og Jaasíel frá Mesóbaja.

Neðanmáls

Sem þýðir ‚jarðfylling‘. Hugsanlega var þetta einhvers konar virki.
Eða „á Refaímsléttu“.
Orðrétt „sonur hreystimennis“.
Það er, um 2,23 m. Sjá viðauka B14.