Fyrri Kroníkubók 16:1–43

  • Örkinni komið fyrir í tjaldi (1–6)

  • Þakkarsöngur Davíðs (7–36)

    • „Jehóva er orðinn konungur!“ (31)

  • Þjónusta frammi fyrir örkinni (37–43)

16  Örk hins sanna Guðs var nú borin inn og henni komið fyrir í tjaldinu sem Davíð hafði slegið upp fyrir hana,+ og færðar voru brennifórnir og samneytisfórnir frammi fyrir hinum sanna Guði.+  Eftir að Davíð hafði fært brennifórnirnar+ og samneytisfórnirnar+ blessaði hann fólkið í nafni Jehóva.  Auk þess gaf hann öllum Ísraelsmönnum, bæði körlum og konum, einn kringlóttan brauðhleif á mann, eina döðluköku og eina rúsínuköku.  Síðan skipaði hann nokkra Levíta til að gegna þjónustu frammi fyrir örk Jehóva,+ til að tigna,* þakka og lofa Jehóva Guð Ísraels.  Asaf+ fór með forystuna og Sakaría var honum næstur. Jeíel, Semíramót, Jehíel, Mattitja, Elíab, Benaja, Óbeð Edóm og Jeíel+ léku á hörpur+ og önnur strengjahljóðfæri. Asaf lék á málmgjöll+  og prestarnir Benaja og Jahasíel áttu stöðugt að blása í lúðra frammi fyrir sáttmálsörk hins sanna Guðs.  Þennan dag samdi Davíð í fyrsta sinn þakkarsöng handa Jehóva sem Asaf+ og bræður hans fluttu:  „Þakkið Jehóva,+ ákallið nafn hans,gerið afrek hans kunn meðal þjóðanna!+  Syngið fyrir hann, lofsyngið* hann,+hugleiðið* öll máttarverk hans.+ 10  Segið stolt frá heilögu nafni hans.+ Hjörtu þeirra sem leita Jehóva gleðjist.+ 11  Leitið Jehóva+ og máttar hans,leitið stöðugt áheyrnar* hans.+ 12  Munið eftir máttarverkunum sem hann vann,+kraftaverkum hans og dómunum sem hann kvað upp, 13  þið afkomendur Ísraels þjóns hans,+þið synir Jakobs, hans útvöldu.+ 14  Hann er Jehóva Guð okkar.+ Dómar hans gilda um alla jörð.+ 15  Minnist sáttmála hans að eilífu,loforðsins sem hann gaf þúsund kynslóðum,+ 16  sáttmálans sem hann gerði við Abraham+og eiðsins sem hann sór Ísak.+ 17  Hann gaf Jakobi hann sem lög+og Ísrael sem varanlegan sáttmála. 18  Hann sagði: ‚Ég gef þér Kanaansland,+gef þér það að erfðahlut.‘+ 19  Á þeim tíma voru þeir fáir að tölu,já, mjög fáir, og þeir voru útlendingar í landinu.+ 20  Þeir reikuðu um frá einni þjóð til annarrar,frá einu ríki til annars.+ 21  Hann leyfði engum að kúga þá+en þeirra vegna ávítaði hann konunga+ 22  og sagði: ‚Snertið ekki mína smurðuog gerið spámönnum mínum ekki mein.‘+ 23  Lofsyngið Jehóva, allir jarðarbúar! Segið frá björgunarverkum hans dag eftir dag!+ 24  Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna,undraverkum hans meðal allra manna, 25  því að Jehóva er mikill og verðskuldar lof,hann er mikilfenglegri en allir aðrir guðir.+ 26  Allir guðir þjóðanna eru einskis nýtir+en Jehóva er sá sem skapaði himininn.+ 27  Hann er umlukinn tign og ljóma,+máttur og gleði er í bústað hans.+ 28  Veitið Jehóva verðskuldað lof, þið ættir þjóðanna,lofið Jehóva fyrir dýrð hans og mátt.+ 29  Veitið Jehóva það lof sem nafn hans á skilið,+komið fram fyrir hann með gjöf.+ Fallið fram fyrir* Jehóva í helgum skrúða.*+ 30  Öll jörðin skjálfi frammi fyrir honum. Jörðin* stendur stöðug, hún haggast ekki.+ 31  Himnarnir fagni og jörðin gleðjist.+ Boðið meðal þjóðanna: ‚Jehóva er orðinn konungur!‘+ 32  Hafið drynji og allt sem í því er,sáðlöndin fagni og allt sem á þeim er 33  og tré skógarins hrópi af gleði frammi fyrir Jehóvaþví að hann kemur* til að dæma jörðina. 34  Þakkið Jehóva því að hann er góður,+tryggur kærleikur hans varir að eilífu.+ 35  Segið: ‚Bjargaðu okkur, Guð okkar og frelsari.+ Safnaðu okkur saman og frelsaðu okkur frá þjóðunumsvo að við getum þakkað heilögu nafni þínu+og lofað þig fagnandi.+ 36  Lofaður sé Jehóva Guð Ísraelsum alla eilífð.‘“* Og allt fólkið sagði: „Amen!“* og lofaði Jehóva. 37  Davíð lét síðan Asaf+ og bræður hans verða eftir frammi fyrir sáttmálsörk Jehóva. Þeir áttu stöðugt að gegna þjónustu frammi fyrir örkinni+ og sinna daglegum verkefnum sínum.+ 38  Óbeð Edóm og bræður hans 68 voru hliðverðir og einnig Óbeð Edóm Jedútúnsson og Hósa. 39  Sadók+ prestur þjónaði ásamt öðrum prestum frammi fyrir tjaldbúð Jehóva á fórnarhæðinni í Gíbeon.+ 40  Þeir áttu stöðugt að færa Jehóva brennifórnir á brennifórnaraltarinu, kvölds og morgna, og fylgja öllu sem stendur í lögum Jehóva sem hann gaf Ísrael.+ 41  Hjá þeim voru Heman og Jedútún+ og hinir mennirnir sem höfðu verið valdir til að þakka Jehóva+ því að „tryggur kærleikur hans varir að eilífu“.+ 42  Heman+ og Jedútún voru með þeim til að lofa hinn sanna Guð með lúðrum, málmgjöllum og öðrum hljóðfærum, og synir Jedútúns+ voru við hliðið. 43  Síðan fór allt fólkið heim til sín og Davíð fór einnig heim til fjölskyldu sinnar til að blessa hana.

Neðanmáls

Orðrétt „minnast“.
Eða „leikið tónlist fyrir“.
Eða hugsanl. „talið um“.
Orðrétt „eftir augliti“.
Eða hugsanl. „vegna ljómans af heilagleika hans“.
Eða „Tilbiðjið“.
Eða „Frjósamt landið“.
Eða „er kominn“.
Eða „frá eilífð til eilífðar“.
Eða „Verði svo!“