Fyrri Kroníkubók 2:1–55

  • Tólf synir Ísraels (1, 2)

  • Afkomendur Júda (3–55)

2  Synir Ísraels+ voru: Rúben,+ Símeon,+ Leví,+ Júda,+ Íssakar,+ Sebúlon,+  Dan,+ Jósef,+ Benjamín,+ Naftalí,+ Gað+ og Asser.+  Synir Júda voru Er, Ónan og Sela. Þessa þrjá syni eignaðist hann með kanversku konunni, dóttur Súa.+ En Er frumburður Júda gerði það sem var illt í augum Jehóva svo að hann lét hann deyja.+  Tamar+ tengdadóttir Júda ól honum Peres+ og Sera. Júda átti alls fimm syni.  Synir Peresar voru Hesrón og Hamúl.+  Synir Sera voru Simrí, Etan, Heman, Kalkól og Dara, alls fimm.  Sonur* Karmí var Akar* sem leiddi ógæfu yfir Ísrael.+ Hann reyndist ótrúr og óhlýðnaðist fyrirmælunum um það sem átti að eyða.*+  Sonur* Etans var Asarja.  Synirnir sem Hesrón eignaðist voru Jerahmeel,+ Ram+ og Kelúbaí.* 10  Ram eignaðist Ammínadab+ og Ammínadab eignaðist Nakson+ sem var höfðingi afkomenda Júda. 11  Nakson eignaðist Salma,+ Salma eignaðist Bóas,+ 12  Bóas eignaðist Óbeð og Óbeð eignaðist Ísaí.+ 13  Ísaí eignaðist Elíab frumburð sinn. Abínadab+ var annar í röðinni, Símea sá þriðji,+ 14  Netanel sá fjórði, Raddaí sá fimmti, 15  Ósem sá sjötti og Davíð+ sá sjöundi. 16  Systur þeirra voru Serúja og Abígail.+ Synir Serúju voru Abísaí,+ Jóab+ og Asael,+ þrír talsins. 17  Abígail fæddi Amasa+ en faðir Amasa var Jeter Ísmaelíti. 18  Kaleb* Hesrónsson eignaðist syni með Asúbu konu sinni og með Jeríót. Þetta voru synir hennar: Jeser, Sóbab og Ardon. 19  Þegar Asúba dó gekk Kaleb að eiga Efrat+ og hún ól honum Húr.+ 20  Húr eignaðist Úrí og Úrí eignaðist Besalel.+ 21  Síðar meir gekk Hesrón að eiga dóttur Makírs+ en hann var faðir Gíleaðs.+ Hann giftist henni þegar hann var 60 ára og hún ól honum Segúb. 22  Segúb eignaðist Jaír+ sem átti 23 borgir í Gíleaðlandi.+ 23  (Íbúar Gesúr+ og Sýrlands+ tóku af þeim Havót Jaír+ ásamt Kenat+ og þorpunum sem tilheyrðu henni,* alls 60 borgir.) Allir þessir voru afkomendur Makírs föður Gíleaðs. 24  Eftir dauða Hesróns+ í Kaleb Efrata ól Abía kona Hesróns honum Ashúr+ föður Tekóa.*+ 25  Synir Jerahmeels frumburðar Hesróns voru Ram, frumburðurinn, og Búna, Óren, Ósem og Ahía. 26  Jerahmeel átti aðra konu sem hét Atara. Hún var móðir Ónams. 27  Synir Rams frumburðar Jerahmeels voru Maas, Jamín og Eker. 28  Synir Ónams voru Sammaí og Jada. Synir Sammaí voru Nadab og Abísúr. 29  Kona Abísúrs hét Abíhaíl. Hún ól honum Akban og Mólíd. 30  Synir Nadabs voru Seled og Appaím en Seled dó barnlaus. 31  Sonur* Appaíms var Jíseí, sonur* Jíseí var Sesan og sonur* Sesans var Ahlaí. 32  Synir Jada bróður Sammaí voru Jeter og Jónatan en Jeter dó barnlaus. 33  Synir Jónatans voru Pelet og Sasa. Þetta voru afkomendur Jerahmeels. 34  Sesan átti enga syni, aðeins dætur. En Sesan átti egypskan þjón sem hét Jarha. 35  Sesan gaf Jarha þjóni sínum dóttur sína að konu og þau eignuðust Attaí. 36  Attaí eignaðist Natan, Natan eignaðist Sabad, 37  Sabad eignaðist Eflal, Eflal eignaðist Óbeð, 38  Óbeð eignaðist Jehú, Jehú eignaðist Asarja, 39  Asarja eignaðist Heles, Heles eignaðist Eleasa, 40  Eleasa eignaðist Sísemaí, Sísemaí eignaðist Sallúm, 41  Sallúm eignaðist Jekamja og Jekamja eignaðist Elísama. 42  Synir Kalebs*+ bróður Jerahmeels voru Mesa frumburður hans, sem var faðir Sífs, og synir Maresa föður Hebrons. 43  Synir Hebrons voru Kóra, Tappúa, Rekem og Sema. 44  Sema eignaðist Raham föður Jorkeams. Rekem eignaðist Sammaí. 45  Sonur Sammaí var Maon. Maon var faðir Bet Súrs.+ 46  Efa hjákona Kalebs fæddi Haran, Mósa og Gases. Haran eignaðist Gases. 47  Synir Jehdaí voru Regem, Jótam, Gesan, Pelet, Efa og Saaf. 48  Maaka hjákona Kalebs fæddi Seber og Tírkana. 49  Þegar fram liðu stundir fæddi hún Saaf föður Madmanna+ og Sefa, föður Makbena og Gíbea.+ Dóttir Kalebs+ var Aksa.+ 50  Þetta voru afkomendur Kalebs. Synir Húrs+ frumburðar Efrötu+ voru Sóbal, faðir Kirjat Jearíms,+ 51  Salma faðir Betlehems+ og Haref, faðir Bet Gaders. 52  Sóbal, faðir Kirjat Jearíms, átti syni: Haróe og hálfa Menúhót-ætt. 53  Ættir Kirjat Jearíms voru Jítrítar,+ Pútítar, Súmatítar og Misraítar. Af þeim komu Sóreatítar+ og Estaólítar.+ 54  Synir Salma voru Betlehem,+ Netófatítar, Atrót Bet Jóab, helmingur Manahatíta og Sóreítar. 55  Ættir fræðimannanna sem bjuggu í Jabes voru Tíreatítar, Símeatítar og Súkatítar. Þetta voru Kenítarnir+ sem komu af Hammat föður Rekabsættar.+

Neðanmáls

Eða „helga eyðingu“. Sjá orðaskýringar.
Sem þýðir ‚sá sem veldur ógæfu; sá sem veldur erfiðleikum‘. Einnig nefndur Akan í Jós 7:1.
Orðrétt „Synir“.
Orðrétt „Synir“.
Einnig nefndur Kaleb í versi 18, 19 og 42.
Einnig nefndur Kelúbaí í 9. versi.
Eða „þorpunum í kring“.
Sum nöfn í þessum kafla geta átt við staði frekar en fólk. Þá merkir „faðir“ hugsanlega ‚stofnandi‘.
Orðrétt „Synir“.
Orðrétt „synir“.
Orðrétt „synir“.
Einnig nefndur Kelúbaí í 9. versi.