Fyrri Kroníkubók 20:1–8
20 Í ársbyrjun,* um það leyti sem konungar fara í hernað, fór Jóab+ með liði sínu í herferð og eyddi land Ammóníta. Hann settist um Rabba+ en Davíð var um kyrrt í Jerúsalem.+ Jóab réðst á Rabba og reif hana niður.+
2 Síðan tók Davíð kórónuna af höfði Malkams* en hún var úr gulli sem reyndist vera ein talenta* að þyngd og var skreytt eðalsteinum. Hún var sett á höfuð Davíðs. Hann tók einnig gríðarmikið herfang úr borginni.+
3 Hann flutti íbúana burt og lét þá saga steina og vinna með járnhökum og öxum.+ Þannig fór Davíð með allar borgir Ammóníta. Síðan sneri hann heim til Jerúsalem ásamt öllu liðinu.
4 Seinna braust út stríð við Filistea hjá Geser. Sibbekaí+ Húsatíti felldi þá Sippaí, sem var afkomandi Refaíta,+ og Filistear biðu ósigur.
5 Aftur kom til bardaga við Filistea. Elkanan Jaírsson felldi þá Lahmí, bróður Gatítans Golíats,+ en skaftið á spjóti hans var eins svert og þverslá í vefstól.+
6 Enn og aftur braust út stríð hjá Gat.+ Þar var risavaxinn maður+ með 6 fingur á hvorri hendi og 6 tær á hvorum fæti, alls 24 fingur og tær. Hann var líka kominn af Refaítum.+
7 Hann hæddist+ að Ísrael en Jónatan, sonur Símea+ bróður Davíðs, drap hann.
8 Þessir menn voru afkomendur Refaíta+ í Gat.+ Þeir féllu fyrir hendi Davíðs og manna hans.