Fyrri Kroníkubók 25:1–31

  • Hljóðfæraleikarar og söngvarar í húsi Guðs (1–31)

25  Davíð og umsjónarmenn þjónustuflokkanna tóku síðan frá nokkra af sonum Asafs, Hemans og Jedútúns+ til að lofa Guð og spá með hörpum, strengjahljóðfærum+ og málmgjöllum.+ Hér er skrá yfir mennina sem var falin þessi þjónusta:  af sonum Asafs: Sakkúr, Jósef, Netanja og Asarela. Synir Asafs voru undir stjórn Asafs sem spáði undir leiðsögn konungs.  Af Jedútún,+ það er sonum Jedútúns: Gedalja, Serí, Jesaja, Símeí, Hasabja og Mattitja,+ sex talsins. Þeir voru undir stjórn Jedútúns föður síns sem spáði með hörpu til að þakka Jehóva og lofa hann.+  Af Heman,+ það er sonum Hemans: Búkkía, Mattanja, Ússíel, Sebúel, Jerímót, Hananja, Hananí, Elíata, Giddaltí, Rómamtí Eser, Josbekasa, Mallótí, Hótír og Mahasíót.  Allir þessir voru synir Hemans, sjáanda konungs sem miðlaði boðskap frá hinum sanna Guði, honum til heiðurs.* Hinn sanni Guð gaf Heman 14 syni og 3 dætur.  Allir þessir menn sungu undir stjórn föður síns í húsi Jehóva. Þeir léku á málmgjöll, strengjahljóðfæri og hörpur+ við þjónustuna í húsi hins sanna Guðs. Asaf, Jedútún og Heman voru undir leiðsögn konungs.  Þeir voru 288 talsins ásamt bræðrum sínum sem voru þjálfaðir í að syngja fyrir Jehóva. Allt voru þetta meistarar á sínu sviði.  Þeir vörpuðu hlutkesti+ um störf sín, hinn minnsti og sá mesti, vanir menn sem byrjendur.  Fyrsti hluturinn féll á Jósef+ Asafsson, annar féll á Gedalja,+ en hann, bræður hans og synir voru 12 talsins. 10  Þriðji hluturinn féll á Sakkúr,+ syni hans og bræður, alls 12, 11  fjórði á Jísrí, syni hans og bræður, alls 12, 12  fimmti á Netanja,+ syni hans og bræður, alls 12, 13  sjötti á Búkkía, syni hans og bræður, alls 12, 14  sjöundi á Jesarela, syni hans og bræður, alls 12, 15  áttundi á Jesaja, syni hans og bræður, alls 12, 16  níundi á Mattanja, syni hans og bræður, alls 12, 17  tíundi á Símeí, syni hans og bræður, alls 12, 18  11. á Asarel, syni hans og bræður, alls 12, 19  12. á Hasabja, syni hans og bræður, alls 12, 20  13. á Súbael,+ syni hans og bræður, alls 12, 21  14. á Mattitja, syni hans og bræður, alls 12, 22  15. á Jeremót, syni hans og bræður, alls 12, 23  16. á Hananja, syni hans og bræður, alls 12, 24  17. á Josbekasa, syni hans og bræður, alls 12, 25  18. á Hananí, syni hans og bræður, alls 12, 26  19. á Mallótí, syni hans og bræður, alls 12, 27  20. á Elíata, syni hans og bræður, alls 12, 28  21. á Hótír, syni hans og bræður, alls 12, 29  22. á Giddaltí,+ syni hans og bræður, alls 12, 30  23. á Mahasíót,+ syni hans og bræður, alls 12, 31  24. á Rómamtí Eser,+ syni hans og bræður, alls 12.

Neðanmáls

Orðrétt „til að hefja upp horn hans“.