Fyrri Kroníkubók 3:1–24

  • Afkomendur Davíðs (1–9)

  • Konungsætt Davíðs (10–24)

3  Þetta voru synir Davíðs sem hann eignaðist í Hebron:+ Amnon,+ frumburðurinn, en móðir hans var Akínóam+ frá Jesreel. Næstur kom Daníel en móðir hans var Abígail+ frá Karmel.  Sá þriðji var Absalon,+ sonur Maöku dóttur Talmaí, konungs í Gesúr. Sá fjórði var Adónía+ sonur Haggítar.  Sá fimmti var Sefatja en móðir hans var Abítal. Sá sjötti var Jitream en móðir hans var Egla kona Davíðs.  Þessa sex syni eignaðist hann í Hebron. Þar ríkti hann í 7 ár og 6 mánuði en í Jerúsalem ríkti hann í 33 ár.+  Þessa eignaðist hann í Jerúsalem:+ Símea, Sóbab, Natan+ og Salómon.+ Hann átti þessa fjóra með Batsebu+ Ammíelsdóttur.  Hann eignaðist níu aðra syni: Jíbhar, Elísama, Elífelet,  Nóga, Nefeg, Jafía,  Elísama, Eljada og Elífelet.  Þetta voru allir synir Davíðs að undanskildum sonum hjákvennanna. Tamar+ var systir þeirra. 10  Sonur Salómons var Rehabeam,+ sonur hans var Abía,+ sonur hans Asa,+ sonur hans Jósafat,+ 11  sonur hans Jóram,+ sonur hans Ahasía,+ sonur hans Jóas,+ 12  sonur hans Amasía,+ sonur hans Asaría,+ sonur hans Jótam,+ 13  sonur hans Akas,+ sonur hans Hiskía,+ sonur hans Manasse,+ 14  sonur hans Amón+ og sonur hans Jósía.+ 15  Synir Jósía voru Jóhanan, frumburðurinn, næstur kom Jójakím,+ Sedekía+ var sá þriðji og Sallúm sá fjórði. 16  Synir* Jójakíms voru Jekonja+ sonur hans og Sedekía sonur hans. 17  Synir Jekonja, sem var tekinn til fanga, voru Sealtíel, 18  Malkíram, Pedaja, Seneasser, Jekamja, Hósama og Nedabja. 19  Synir Pedaja voru Serúbabel+ og Símeí. Synir Serúbabels voru Mesúllam og Hananja og Selómít var systir þeirra. 20  Hann eignaðist fimm aðra syni: Hasúba, Óhel, Berekía, Hasadja og Júsab Hesed. 21  Synir Hananja voru Pelatja og Jesaja. Sonur* Jesaja var Refaja, sonur* Refaja var Arnan, sonur* Arnans var Óbadía og sonur* Óbadía var Sekanja. 22  Synir Sekanja voru Semaja og synir hans: Hattús, Jígal, Baría, Nearja og Safat, alls sex. 23  Synir Nearja voru Eljóenaí, Hiskía og Asríkam, þrír talsins. 24  Og synir Eljóenaí voru Hódavja, Eljasíb, Pelaja, Akkúb, Jóhanan, Delaja og Ananí, alls sjö.

Neðanmáls

Hebreska orðið getur átt við syni, barnabörn og aðra afkomendur.
Orðrétt „Synir“.
Orðrétt „synir“.
Orðrétt „synir“.
Orðrétt „synir“.