Fyrri Kroníkubók 7:1–40

7  Synir Íssakars voru Tóla, Púa, Jasúb og Simron,+ alls fjórir.  Synir Tóla voru Ússí, Refaja, Jeríel, Jahemaí, Jíbsam og Samúel. Þeir voru höfðingjar ætta sinna. Af Tóla komu dugmiklir hermenn sem voru 22.600 á dögum Davíðs.  Afkomendur* Ússí voru Jísrahja og synir Jísrahja, þeir Mikael, Óbadía, Jóel og Jissía. Allir fimm voru höfðingjar.  Í ættartölum þeirra voru skráðir eftir ættum þeirra 36.000 hermenn sem voru færir til bardaga enda áttu þeir margar konur og syni.  Bræður þeirra af öllum ættum Íssakars voru dugmiklir hermenn. Samkvæmt ættartölum voru þeir alls 87.000 talsins.+  Synir Benjamíns+ voru Bela,+ Beker+ og Jedíael,+ þrír talsins.  Synir Bela voru Esbon, Ússí, Ússíel, Jerímót og Írí, alls fimm. Þeir voru höfðingjar ætta sinna, dugmiklir hermenn, og í ættartölum þeirra voru 22.034 menn.+  Synir Bekers voru Semíra, Jóas, Elíeser, Eljóenaí, Omrí, Jeremót, Abía, Anatót og Alemet. Allir þessir voru synir Bekers.  Í ættartölum þeirra voru 20.200 dugmiklir hermenn skráðir eftir ættarhöfðingjum sínum. 10  Synir* Jedíaels+ voru Bílhan og synir Bílhans: Jeús, Benjamín, Ehúð, Kenaana, Setan, Tarsis og Ahísahar. 11  Allir þessir voru synir Jedíaels. Meðal afkomenda þessara ættarhöfðingja voru 17.200 dugmiklir hermenn, færir til bardaga. 12  Súppítar og Húppítar* voru afkomendur Írs.+ Húsítar* voru afkomendur Akers. 13  Synir Naftalí+ voru Jahsíel, Gúní, Jeser og Sallúm, afkomendur* Bílu.+ 14  Synir Manasse+ voru: Asríel sem sýrlensk hjákona hans ól. (Hún fæddi Makír+ föður Gíleaðs. 15  Makír tók konu handa Húppím og Súppím en systir hans hét Maaka.) Annar sonurinn hét Selofhað+ en Selofhað átti aðeins dætur.+ 16  Maaka kona Makírs fæddi son og nefndi hann Peres en bróðir hans hét Seres. Synir hans voru Úlam og Rekem. 17  Og sonur* Úlams var Bedan. Þetta voru synir Gíleaðs, sonar Makírs, sonar Manasse. 18  Systir hans var Hammóleket. Hún fæddi Íshód, Abíeser og Mahela. 19  Synir Semída voru Ahjan, Sekem, Líkhí og Aníam. 20  Synir Efraíms+ voru þessir: Sútela,+ Bered sonur hans, Tahat sonur hans, Eleada sonur hans, Tahat sonur hans, 21  Sabad sonur hans, Sútela sonur hans og einnig Eser og Elead. Menn frá Gat,+ sem fæddust í landinu, drápu þá þegar þeir fóru til að ræna hjörðum þeirra. 22  Efraím faðir þeirra syrgði þá lengi og bræður hans komu til að hugga hann. 23  Síðan lagðist hann með konu sinni og hún varð barnshafandi og fæddi son. En hann nefndi hann Bería* því að hún fæddi hann þegar ógæfa dundi yfir heimili hans. 24  Dóttir hans var Seera sem byggði Neðri-+ og Efri-Bet Hóron+ og Ússen Seera. 25  Síðan voru það Refa sonur hans, Resef, Tela sonur hans, Tahan sonur hans, 26  Laedan sonur hans, Ammíhúd sonur hans, Elísama sonur hans, 27  Nún sonur hans og Jósúa*+ sonur hans. 28  Landsvæði þeirra þar sem þeir settust að voru Betel+ og tilheyrandi þorp* austur til Naaran og vestur til Geser og tilheyrandi þorpa, og einnig Síkem og tilheyrandi þorp allt til Aja* og tilheyrandi þorpa. 29  Afkomendur Manasse áttu borgir hinum megin við landamæri sín: Bet Sean+ og tilheyrandi þorp, Taanak+ og tilheyrandi þorp, Megiddó+ og tilheyrandi þorp og Dór+ og tilheyrandi þorp. Í þessum borgum bjuggu afkomendur Jósefs, sonar Ísraels. 30  Synir Assers voru Jimna, Jísva, Jísví og Bería.+ Systir þeirra hét Sera.+ 31  Synir Bería voru Heber og Malkíel sem var faðir Birsaíts. 32  Heber eignaðist Jaflet, Sómer og Hótam og Súu systur þeirra. 33  Synir Jaflets voru Pasak, Bímhal og Asvat. Þetta voru synir Jaflets. 34  Synir Semers* voru Ahí, Róhga, Jehúbba og Aram. 35  Synir Helems* bróður hans voru Sófa, Jímna, Seles og Amal. 36  Synir Sófa voru Súa, Harnefer, Súal, Berí, Jímra, 37  Beser, Hód, Samma, Silsa, Jítran og Beera. 38  Synir Jeters voru Jefúnne, Pispa og Ara. 39  Synir Úlla voru Ara, Hanníel og Risja. 40  Allir þessir voru synir Assers, höfðingjar ætta sinna, útvaldir, dugmiklir hermenn og foringjar hershöfðingjanna. Samkvæmt ættartölum þeirra+ höfðu þeir 26.000 menn+ sem voru hæfir til að gegna herþjónustu.

Neðanmáls

Orðrétt „Synir“.
Hebreska orðið getur átt við syni, barnabörn og aðra afkomendur.
Eða „Súppím og Húppím“.
Eða „Húsím“.
Orðrétt „synir“.
Orðrétt „synir“.
Sem þýðir ‚með ógæfu‘.
Eða „Jehósúa“ sem merkir ‚Jehóva er hjálpræði‘.
Eða hugsanl. „Gasa“, þó ekki Gasa í Filisteu.
Eða „þorpin í kring“.
Einnig nefndur Sómer í 32. versi.
Líklega sá sami og er nefndur Hótam í 32. versi.