Fyrsta Mósebók 13:1–18

  • Abram snýr aftur til Kanaanslands (1–4)

  • Abram og Lot skilja (5–13)

  • Guð endurtekur loforð sitt við Abram (14–18)

13  Abram fór nú frá Egyptalandi og hélt til Negeb+ með konu sína og allt sem hann átti, og Lot fór með honum.  Abram var vellauðugur að búfé, silfri og gulli.+  Hann ferðaðist frá Negeb og færði búðir sínar smám saman í átt að Betel þar til hann kom til staðarins milli Betel og Aí+ þar sem hann hafði áður tjaldað,  staðarins þar sem hann hafði reist altari. Þar ákallaði Abram nafn Jehóva.  Lot, sem ferðaðist með Abram, átti líka sauðfé, nautgripi og tjöld.  Þeir áttu svo mikið að landið rúmaði ekki þá báða og þeir gátu ekki lengur búið þar saman.  Það fór því svo að það kastaðist í kekki milli hjarðmanna Abrams og hjarðmanna Lots. (Kanverjar og Peresítar bjuggu þá í landinu.)+  Abram sagði þá við Lot:+ „Það mega ekki vera deilur milli mín og þín né milli hjarðmanna minna og hjarðmanna þinna því að við erum bræður.  Stendur ekki allt landið þér til boða? Nú tel ég best að þú farir þína leið. Ef þú ferð til vinstri fer ég til hægri en ef þú ferð til hægri fer ég til vinstri.“ 10  Þá leit Lot í kringum sig og sá hve vatnsrík öll Jórdansléttan+ var, allt til Sóar,+ eins og aldingarður Jehóva,+ eins og Egyptaland. (Þetta var áður en Jehóva eyddi Sódómu og Gómorru.) 11  Lot valdi sér alla Jórdansléttuna og flutti búðir sínar til austurs. Þannig skildu leiðir með þeim. 12  Abram bjó í Kanaanslandi en Lot bjó í grennd við borgirnar á Jórdansléttunni+ og sló að lokum upp tjaldi sínu nálægt Sódómu. 13  En íbúar Sódómu voru illir og syndguðu gróflega gegn Jehóva.+ 14  Jehóva sagði við Abram eftir að Lot hafði skilið við hann: „Líttu í kringum þig frá staðnum þar sem þú ert og horfðu til norðurs, suðurs, austurs og vesturs. 15  Allt landið sem þú sérð gef ég þér og afkomendum þínum og það skal vera eign ykkar um ókomna tíð.+ 16  Ég geri afkomendur þína eins marga og rykkorn jarðar. Ef einhver getur talið rykkorn jarðar þá verður hægt að telja afkomendur þína.+ 17  Leggðu nú af stað og farðu um landið þvert og endilangt því að þér mun ég gefa það.“ 18  Abram bjó því áfram í tjöldum. Loks kom hann að stóru trjánum í Mamre+ sem er í Hebron+ og settist þar að. Þar reisti hann Jehóva altari.+

Neðanmáls