Fyrsta Mósebók 46:1–34

  • Jakob og fjölskylda flytjast til Egyptalands (1–7)

  • Nöfn þeirra sem komu til Egyptalands (8–27)

  • Jósef og Jakob hittast í Gósen (28–34)

46  Ísrael lagði nú af stað með allt sem hann átti.* Hann kom til Beerseba+ og þar færði hann Guði Ísaks föður síns+ sláturfórnir.  Um nóttina talaði Guð við Ísrael í sýn. „Jakob, Jakob!“ sagði hann. „Hér er ég,“ svaraði hann.  Guð sagði: „Ég er hinn sanni Guð, Guð föður þíns.+ Vertu ekki hræddur við að fara til Egyptalands því að þar ætla ég að gera þig að mikilli þjóð.+  Ég fer sjálfur með þér til Egyptalands og flyt þig líka sjálfur þaðan aftur+ og Jósef mun leggja hönd sína yfir augu þín.“*+  Síðan lagði Jakob af stað frá Beerseba. Synir Ísraels fluttu Jakob föður sinn og börn sín og konur í vögnunum sem faraó hafði sent til að flytja hann í.  Þeir tóku með sér hjarðir sínar og eigur sem þeir höfðu aflað sér í Kanaanslandi og komu til Egyptalands, Jakob og allir afkomendur hans.  Hann tók syni sína og sonasyni, dætur sínar og sonadætur með sér til Egyptalands, já, alla afkomendur sína.  Þetta eru nöfn afkomenda Ísraels, það er Jakobs, sem komu til Egyptalands:+ Frumburður Jakobs var Rúben.+  Synir Rúbens voru Hanok, Pallú, Hesrón og Karmí.+ 10  Synir Símeons+ voru Jemúel, Jamín, Óhad, Jakín, Sóhar og Sál,+ sonur kanverskrar konu. 11  Synir Leví+ voru Gerson, Kahat og Merarí.+ 12  Synir Júda+ voru Er, Ónan, Sela,+ Peres+ og Sera,+ en Er og Ónan dóu í Kanaanslandi.+ Synir Peresar voru Hesrón og Hamúl.+ 13  Synir Íssakars voru Tóla, Púva, Job og Simron.+ 14  Synir Sebúlons+ voru Sered, Elon og Jahleel.+ 15  Þetta voru synir Leu sem hún ól Jakobi í Paddan Aram auk Dínu dóttur hans.+ Afkomendur hans voru alls 33. 16  Synir Gaðs+ voru Sífjón, Haggí, Súní, Esbon, Erí, Aródí og Arelí.+ 17  Synir Assers+ voru Jimna, Jísva, Jísví og Bería. Systir þeirra hét Sera. Synir Bería voru Heber og Malkíel.+ 18  Þetta voru afkomendur Silpu+ sem Laban gaf Leu dóttur sinni. Afkomendur Silpu og Jakobs voru alls 16 talsins. 19  Synir Rakelar konu Jakobs voru Jósef+ og Benjamín.+ 20  Í Egyptalandi fæddust Jósef synirnir Manasse+ og Efraím+ sem Asenat,+ dóttir Pótífera, prests í Ón,* ól honum. 21  Synir Benjamíns+ voru Bela, Beker, Asbel, Gera,+ Naaman, Ehí, Rós, Múppím, Húppím+ og Ard.+ 22  Þetta voru afkomendur Rakelar og Jakobs, alls 14 talsins. 23  Sonur* Dans+ var Húsím.+ 24  Synir Naftalí+ voru Jahseel, Gúní, Jeser og Sillem.+ 25  Þetta voru afkomendur Bílu sem Laban gaf Rakel dóttur sinni. Afkomendur Bílu og Jakobs voru alls sjö talsins. 26  Afkomendur Jakobs sem komu með honum til Egyptalands voru alls 66 talsins auk tengdadætra hans.+ 27  Jósef átti tvo syni sem höfðu fæðst í Egyptalandi. Alls komu því 70 manns af ætt Jakobs til Egyptalands.+ 28  Jakob sendi Júda+ á undan sér til að láta Jósef vita að hann væri á leiðinni til Gósen. Þegar þeir komu til Gósenlands+ 29  lét Jósef hafa vagn sinn til reiðu og fór til móts við Ísrael föður sinn í Gósen. Þegar þeir hittust féll hann um háls honum og grét lengi í örmum hans. 30  Ísrael sagði við Jósef: „Nú er ég tilbúinn til að deyja fyrst ég hef séð þig og veit að þú ert enn á lífi.“ 31  Jósef sagði við bræður sína og alla fjölskyldu föður síns: „Nú ætla ég að fara til faraós+ og segja við hann: ‚Bræður mínir og fjölskylda föður míns eru komin til mín frá Kanaanslandi.+ 32  Mennirnir eru hjarðmenn+ og stunda búfjárrækt+ og þeir hafa tekið með sér sauði sína og nautgripi og allt sem þeir eiga.‘+ 33  Þegar faraó kallar ykkur fyrir sig og spyr ykkur við hvað þið starfið 34  skuluð þið svara: ‚Þjónar þínir hafa stundað búfjárrækt allt frá unga aldri, bæði við og forfeður okkar.‘+ Þá fáið þið að búa í Gósenlandi+ því að Egyptar hafa andstyggð á öllum fjárhirðum.“+

Neðanmáls

Eða „alla sína“.
Það er, loka þeim þegar Jakob væri dáinn.
Það er, Helíópólis.
Orðrétt „Synir“. Hugsanlega átti hann fleiri syni sem eru ekki nafngreindir.