Síðari Konungabók 11:1–21

  • Atalía rænir völdum (1–3)

  • Jóas gerður að konungi með leynd (4–12)

  • Atalía drepin (13–16)

  • Umbætur Jójada (17–21)

11  Þegar Atalía+ móðir Ahasía sá að sonur hennar var dáinn+ lét hún til skarar skríða og útrýmdi allri konungsættinni.+  En Jóseba, dóttir Jórams konungs og systir Ahasía, laumaðist til að taka Jóas+ Ahasíason úr hópi konungssonanna sem átti að drepa og faldi hann og fóstru hans í einu af svefnherbergjunum. Þannig tókst að leyna honum fyrir Atalíu svo að hann var ekki drepinn.  Hann var í felum hjá henni í húsi Jehóva í sex ár, meðan Atalía ríkti yfir landinu.  Á sjöunda árinu sendi Jójada eftir hundraðshöfðingjunum sem voru yfirmenn konunglegu lífvarðanna* og hallarvarðanna*+ og lét þá koma til sín í hús Jehóva. Hann gerði samning* við þá og lét þá staðfesta hann með eiði í húsi Jehóva. Síðan sýndi hann þeim son konungs+  og gaf þeim þessi fyrirmæli: „Gerið þetta: Þriðjungur ykkar sem eruð á vakt á hvíldardaginn skal standa vörð um konungshöllina,+  þriðjungur skal vera við Grunnhliðið og þriðjungur við hliðið bak við hallarverðina. Þið skuluð skiptast á að standa vörð um húsið.*  Flokkarnir tveir sem eru ekki á vakt á hvíldardaginn eiga að standa vörð um hús Jehóva til að vernda konunginn.  Þið skuluð slá hring um konunginn, allir með vopn í hendi. Ef einhver reynir að ryðjast í gegnum raðirnar skal drepa hann. Haldið ykkur hjá konunginum hvert sem hann fer.“*  Hundraðshöfðingjarnir+ gerðu allt sem Jójada prestur fyrirskipaði. Þeir sóttu menn sína, bæði þá sem voru á vakt á hvíldardeginum og hina sem voru það ekki, og komu síðan til Jójada prests.+ 10  Presturinn lét hundraðshöfðingjana hafa spjótin og kringlóttu skildina sem Davíð konungur hafði átt og voru í húsi Jehóva. 11  Hallarverðirnir+ tóku sér stöðu með vopn í hendi frá suðurhlið hússins til norðurhliðar þess, við altarið+ og við húsið, allt í kringum konung. 12  Síðan leiddi Jójada konungssoninn+ út og setti á hann kórónuna og vitnisburðinn.*+ Þeir gerðu hann að konungi og smurðu hann, klöppuðu saman lófunum og hrópuðu: „Lengi lifi konungurinn!“+ 13  Þegar Atalía heyrði hávaðann í fólkinu sem hljóp um fór hún þegar í stað til húss Jehóva þar sem mannfjöldinn hafði safnast saman.+ 14  Þar sá hún konunginn standa við súluna eins og venja var.+ Hún sá höfðingjana og lúðrablásarana+ standa hjá konungi og alla landsmenn fagna og blása í lúðra. Þá reif Atalía föt sín og hrópaði: „Samsæri! Samsæri!“ 15  En Jójada prestur gaf hundraðshöfðingjunum,+ yfirmönnum hersins, þessi fyrirmæli: „Leiðið hana burt frá liðinu og drepið með sverði hvern þann sem fylgir henni!“ En presturinn hafði áður sagt: „Drepið hana ekki í húsi Jehóva.“ 16  Síðan gripu þeir hana og þegar hún var komin þangað sem hestarnir ganga inn til konungshallarinnar+ var hún drepin. 17  Jójada gerði síðan sáttmála milli Jehóva og konungsins og þjóðarinnar+ um að hún skyldi áfram vera þjóð Jehóva. Hann gerði einnig sáttmála milli konungsins og þjóðarinnar.+ 18  Því næst fóru allir landsmenn til musteris* Baals og rifu niður ölturu hans,+ mölbrutu líkneski hans+ og drápu Baalsprestinn Mattan+ fyrir framan ölturun. Jójada prestur skipaði síðan menn til að hafa umsjón með húsi Jehóva.+ 19  Hann safnaði saman hundraðshöfðingjunum,+ konunglegu lífvörðunum,* hallarvörðunum+ og öllum landsmönnum og saman fylgdu þeir konungi niður frá húsi Jehóva. Þeir gengu til konungshallarinnar gegnum hlið hallarvarðanna og konungurinn settist í hásæti konunganna.+ 20  Allir íbúar landsins fögnuðu og friður og ró ríkti í borginni því að Atalía hafði verið drepin með sverði við konungshöllina. 21  Jóas+ var sjö ára þegar hann varð konungur.+

Neðanmáls

Orðrétt „Kareanna“.
Orðrétt „hlauparanna“.
Eða „sáttmála“.
Eða „musterið“.
Orðrétt „þegar hann fer út og þegar hann kemur inn“.
Hugsanlega bókrolla með lögum Guðs.
Orðrétt „húss“.
Orðrétt „Kareunum“.