Síðari Kroníkubók 13:1–22

  • Abía Júdakonungur (1–22)

    • Abía sigrar Jeróbóam (3–20)

13  Á 18. stjórnarári Jeróbóams konungs varð Abía konungur yfir Júda.+  Hann ríkti í þrjú ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Míkaja+ og var dóttir Úríels frá Gíbeu.+ Abía og Jeróbóam áttu í stríði hvor við annan.+  Abía hélt til bardaga með 400.000 manna her, sterka og þjálfaða* hermenn.+ Jeróbóam fylkti her sínum gegn honum, 800.000 þjálfuðum* stríðsköppum.  Abía tók sér stöðu á Semaraímfjalli, sem er í fjalllendi Efraíms, og sagði: „Hlustið á mig, Jeróbóam og allur Ísrael.  Vitið þið ekki að Jehóva Guð Ísraels gaf Davíð og sonum hans+ konungdóm yfir Ísrael um alla eilífð+ með saltsáttmála?*+  En Jeróbóam+ Nebatsson, þjónn Salómons sonar Davíðs, setti sig upp á móti herra sínum og gerði uppreisn gegn honum.+  Dugleysingjar og illmenni slógust í lið með honum og þeir urðu öflugri en Rehabeam sonur Salómons. Rehabeam var þá ungur og óöruggur og gat ekki staðið gegn þeim.  Og nú þykist þið geta staðið gegn konungdómi Jehóva, sem er í höndum sona Davíðs, af því að þið eruð fjölmennir og hafið hjá ykkur gullkálfana sem Jeróbóam gerði að guðum handa ykkur.+  Hafið þið ekki rekið burt presta Jehóva,+ afkomendur Arons, og Levítana og skipað ykkar eigin presta eins og þjóðir annarra landa?+ Hver sem kom* með ungnaut og sjö hrúta gat orðið prestur guða sem eru engir guðir. 10  En Jehóva er Guð okkar+ og við höfum ekki yfirgefið hann. Prestar okkar, afkomendur Arons, þjóna Jehóva og Levítarnir aðstoða þá. 11  Á hverjum morgni og hverju kvöldi+ láta þeir reykinn af brennifórnum og ilmreykelsum+ stíga upp til Jehóva. Þeir leggja brauðstaflana*+ á borðið úr skíragulli og á hverju kvöldi kveikja þeir á gullljósastikunni+ og lömpum hennar.+ Við rækjum skyldur okkar við Jehóva Guð okkar en þið hafið yfirgefið hann. 12  Takið eftir: Hinn sanni Guð er með okkur og fer fyrir okkur. Prestar hans eru hér með lúðrana, tilbúnir til að blása til atlögu gegn ykkur. Ísraelsmenn, berjist ekki gegn Jehóva, Guði forfeðra ykkar, því að þið munuð ekki hafa erindi sem erfiði.“+ 13  En Jeróbóam sendi launsáturslið til að koma aftan að þeim. Meginherinn var því fyrir framan Júdamenn en launsátursliðið fyrir aftan þá. 14  Þegar Júdamenn sneru sér við sáu þeir að ráðist var á þá bæði að framan og aftan. Þá hrópuðu þeir til Jehóva+ og prestarnir blésu hátt í lúðrana. 15  Síðan ráku Júdamenn upp heróp. Þegar þeir hrópuðu sigraði hinn sanni Guð Jeróbóam og allan Ísrael frammi fyrir Abía og Júdamönnum. 16  Ísraelsmenn lögðu á flótta en Guð lét þá falla í hendur Júdamanna. 17  Abía og menn hans stráfelldu þá og 500.000 þjálfaðir* menn féllu úr röðum Ísraelsmanna. 18  Þannig voru Ísraelsmenn niðurlægðir þennan dag en Júdamenn voru þeim yfirsterkari af því að þeir reiddu sig á* Jehóva, Guð forfeðra sinna.+ 19  Abía elti Jeróbóam og vann af honum borgir: Betel+ og tilheyrandi þorp,* Jesana og tilheyrandi þorp og Efraín+ og tilheyrandi þorp. 20  Jeróbóam endurheimti aldrei völd sín á meðan Abía lifði. Að lokum laust Jehóva hann svo að hann dó.+ 21  En Abía varð sífellt öflugri. Hann tók sér 14 konur+ og eignaðist 22 syni og 16 dætur. 22  Það sem er ósagt af sögu Abía, því sem hann gerði og sagði, er skráð í riti* Iddós spámanns.+

Neðanmáls

Orðrétt „útvalda“.
Orðrétt „útvöldum“.
Það er, varanlegum og óbreytanlegum sáttmála.
Orðrétt „kom til að fylla hönd sína“.
Það er, skoðunarbrauðin.
Orðrétt „útvaldir“.
Orðrétt „studdust við“.
Eða „þorpin í kring“.
Eða „skýringarriti“.