Síðari Kroníkubók 21:1–20

21  Jósafat var lagður til hvíldar hjá forfeðrum sínum og jarðaður hjá þeim í Davíðsborg. Jóram sonur hans varð konungur eftir hann.+  Bræður hans, synir Jósafats, voru Asarja, Jehíel, Sakaría, Asarja, Mikael og Sefatja. Allir þessir voru synir Jósafats Ísraelskonungs.  Faðir þeirra hafði gefið þeim margar gjafir: silfur, gull og dýrgripi ásamt víggirtum borgum í Júda.+ En hann gaf Jóram konungsríkið+ þar sem hann var frumburðurinn.  Þegar Jóram hafði tekið við konungdóminum af föður sínum tryggði hann völd sín með því að drepa alla bræður sína+ með sverði auk nokkurra af höfðingjum Ísraels.  Jóram var 32 ára þegar hann varð konungur og hann ríkti í átta ár í Jerúsalem.+  Hann fetaði í fótspor Ísraelskonunga+ eins og ætt Akabs hafði gert enda var hann giftur dóttur Akabs.+ Hann gerði það sem var illt í augum Jehóva.  Jehóva vildi samt ekki eyða ætt Davíðs vegna sáttmálans sem hann hafði gert við Davíð,+ en hann hafði lofað að gefa honum og sonum hans lampa* sem stæði að eilífu.+  Á hans dögum gerði Edóm uppreisn gegn Júda+ og tók sér sinn eigin konung.+  Jóram og liðsforingjar hans héldu þá gegn þeim með alla stríðsvagna sína. Um nóttina sigraði hann Edómítana sem höfðu umkringt hann og vagnliðsforingjana. 10  Uppreisn Edóms gegn Júda hefur staðið yfir allt fram á þennan dag. Á sama tíma gerði Líbna+ einnig uppreisn gegn honum af því að hann hafði yfirgefið Jehóva, Guð forfeðra sinna.+ 11  Auk þess hafði hann reist fórnarhæðir+ á fjöllum Júda og þannig tælt Jerúsalembúa til að svíkja Guð.* Hann afvegaleiddi Júda. 12  Nú fékk hann bréf frá Elía+ spámanni sem í stóð: „Jehóva, Guð Davíðs forföður þíns, segir: ‚Þú hefur ekki fetað í fótspor Jósafats+ föður þíns né Asa+ Júdakonungs 13  heldur fetar þú í fótspor Ísraelskonunga.+ Þú hefur tælt Júdamenn og Jerúsalembúa til að svíkja Guð+ eins og ætt Akabs gerði.+ Þú hefur meira að segja drepið bræður þína,+ syni föður þíns, sem voru betri en þú. 14  Þess vegna ætlar Jehóva að slá þjóð þína, syni þína og konur og allt sem þú átt þungu höggi. 15  Og sjálfur muntu þjást af alvarlegum sjúkdómi sem leggst meðal annars á innyfli þín. Veikindin munu ágerast dag frá degi þar til innyflin falla út.‘“ 16  Jehóva sá síðan til þess að Filistear+ og Arabar+ sem bjuggu nálægt Eþíópíumönnum urðu óvinveittir+ Jóram. 17  Þeir réðust á Júda, ruddust inn í landið og tóku að herfangi öll verðmæti sem voru í konungshöllinni+ ásamt sonum hans og konum. Eini sonur hans sem var eftir var Jóahas,*+ sá yngsti. 18  Eftir allt þetta sló Jehóva hann ólæknandi sjúkdómi í innyflunum.+ 19  Nokkru síðar, að tveim árum liðnum, féllu innyflin út vegna sjúkdómsins og hann dó kvalafullum dauða. Þjóð hans kveikti ekkert bál honum til heiðurs eins og gert hafði verið fyrir forfeður hans.+ 20  Hann var 32 ára þegar hann varð konungur og hann ríkti í átta ár í Jerúsalem. Engum þótti leitt að hann skyldi deyja. Hann var grafinn í Davíðsborg+ en þó ekki í gröfum konunganna.+

Neðanmáls

Það er, afkomanda.
Það er, tælt þá til að tilbiðja aðra guði.
Einnig nefndur Ahasía.