Síðari Kroníkubók 22:1–12

  • Ahasía Júdakonungur (1–9)

  • Atalía hrifsar til sín völdin (10–12)

22  Jerúsalembúar gerðu nú Ahasía, yngsta son Jórams, að konungi í hans stað því að ránsflokkurinn sem hafði komið með Aröbunum í búðirnar hafði drepið alla eldri bræðurna.+ Þess vegna varð Ahasía Jóramsson konungur yfir Júda.+  Ahasía var 22 ára þegar hann varð konungur og hann ríkti í eitt ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Atalía+ og var sonardóttir* Omrí.+  Ahasía fetaði líka í fótspor ættar Akabs+ og gerði margt illt því að móðir hans hvatti hann til þess með ráðum sínum.  Hann gerði það sem var illt í augum Jehóva eins og ættingjar Akabs því að þeir urðu ráðgjafar hans eftir dauða föður hans, en það varð honum að falli.  Hann fylgdi ráðum þeirra og fór með Jóram, syni Akabs Ísraelskonungs, í stríð gegn Hasael+ Sýrlandskonungi við Ramót í Gíleað.+ Þar særðu bogaskytturnar Jóram.  Jóram sneri aftur til Jesreel+ til að láta sárin gróa sem hann hafði fengið við Rama* þegar hann barðist við Hasael Sýrlandskonung.+ Ahasía* Jóramsson+ Júdakonungur fór niður til Jesreel til að heimsækja Jóram+ Akabsson af því að hann var særður.*+  En Guð sá til þess að heimsóknin til Jórams varð Ahasía að falli. Þegar hann kom þangað fór hann með Jóram á móti Jehú+ sonarsyni* Nimsí sem Jehóva hafði smurt til að útrýma ætt Akabs.+  Þegar Jehú hafði hafist handa við að framfylgja dóminum yfir ætt Akabs urðu á vegi hans höfðingjar Júda og bræðrasynir Ahasía sem voru í þjónustu Ahasía, og hann drap þá.+  Síðan leitaði hann að Ahasía. Menn hans gripu hann í Samaríu þar sem hann hafði falið sig, fóru með hann til Jehú og drápu hann. Síðan var hann jarðaður+ því að menn sögðu: „Hann er sonarsonur Jósafats sem leitaði Jehóva af öllu hjarta.“+ Nú var enginn af ætt Ahasía sem var fær um að taka við konungdóminum. 10  Þegar Atalía+ móðir Ahasía sá að sonur hennar var dáinn lét hún til skarar skríða og útrýmdi allri konungsætt Júda.+ 11  En Jósabat dóttir konungs laumaðist til að taka Jóas+ Ahasíason úr hópi konungssonanna sem átti að drepa og kom honum og fóstru hans fyrir í einu af svefnherbergjunum. Jósabat, dóttur Jórams+ konungs, tókst að leyna honum fyrir Atalíu svo að hún gæti ekki drepið hann.+ (Jósabat var kona Jójada+ prests og systir Ahasía.) 12  Hann var í felum hjá þeim í húsi hins sanna Guðs í sex ár, meðan Atalía ríkti yfir landinu.

Neðanmáls

Orðrétt „dóttir“.
Stytting á Ramót í Gíleað.
Eða „veikur“.
„Asarja“ í sumum hebreskum handritum.
Orðrétt „syni“.