Síðari Kroníkubók 27:1–9
-
Jótam Júdakonungur (1–9)
27 Jótam+ var 25 ára þegar hann varð konungur og hann ríkti í 16 ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Jerúsa Sadóksdóttir.+
2 Hann gerði það sem var rétt í augum Jehóva, alveg eins og Ússía faðir hans,+ en ólíkt honum fór hann ekki í leyfisleysi inn í musteri Jehóva.+ Fólkið hélt þó áfram að gera það sem var illt.
3 Hann reisti efra hliðið á húsi Jehóva+ og stóð að miklum framkvæmdum við Ófelmúrinn.+
4 Hann reisti einnig borgir+ í fjalllendi Júda+ og virki+ og turna+ í skóglendinu.
5 Hann háði stríð við konung Ammóníta+ og sigraði þá að lokum. Það ár greiddu Ammónítar honum 100 talentur* af silfri, 10.000 kór* af hveiti og 10.000 kór af byggi. Það sama greiddu þeir honum annað og þriðja árið.+
6 Jótam varð sífellt voldugri af því að hann var ákveðinn í að ganga á vegum Jehóva Guðs síns.
7 Það sem er ósagt af sögu Jótams, öllum stríðum hans og verkum, er skráð í Bók Ísraels- og Júdakonunga.+
8 Hann var 25 ára þegar hann varð konungur og hann ríkti í 16 ár í Jerúsalem.+
9 Jótam var lagður til hvíldar hjá forfeðrum sínum og jarðaður í Davíðsborg.+ Akas sonur hans varð konungur eftir hann.+