Síðari Kroníkubók 5:1–14
5 Salómon lauk þannig öllu verki sínu við hús Jehóva.+ Hann sótti munina sem Davíð faðir hans hafði helgað+ og kom silfrinu, gullinu og öllum gripunum fyrir í fjárhirslum húss hins sanna Guðs.+
2 Salómon kallaði nú saman öldunga Ísraels, alla höfðingja ættkvísla og ætta Ísraels. Þeir komu til Jerúsalem til að flytja sáttmálsörk Jehóva upp eftir frá Davíðsborg,+ það er Síon.+
3 Allir Ísraelsmenn komu saman hjá konunginum á hátíðinni* í sjöunda mánuðinum.+
4 Þegar allir öldungar Ísraels voru komnir lyftu Levítarnir örkinni.+
5 Þeir fluttu hana upp eftir ásamt samfundatjaldinu+ og öllum heilögu áhöldunum sem voru í tjaldinu. Það voru prestarnir og Levítarnir* sem fluttu þetta upp eftir.
6 Salómon konungur og allur söfnuður Ísraels, sem var samankominn hjá honum, stóðu frammi fyrir örkinni. Þeir fórnuðu fjölda sauða og nauta,+ fleirum en hægt var að telja eða kasta tölu á.
7 Síðan fluttu prestarnir sáttmálsörk Jehóva á sinn stað, inn í innsta herbergi hússins, hið allra helgasta, undir vængi kerúbanna.+
8 Kerúbarnir þöndu út vængina yfir staðnum þar sem örkin stóð og huldu þannig örkina og stangir hennar+ ofan frá.
9 Stangirnar voru svo langar að það sást í enda þeirra frá hinu heilaga fyrir framan innsta herbergið, en þær sáust ekki utan frá. Þær eru þar enn þann dag í dag.
10 Í örkinni var ekkert nema töflurnar tvær sem Móse hafði lagt í hana við Hóreb+ þegar Jehóva gerði sáttmála+ við Ísraelsmenn á leið þeirra frá Egyptalandi.+
11 Þegar prestarnir komu út úr helgidóminum (en allir prestarnir sem voru viðstaddir höfðu helgað sig,+ sama hvaða flokki þeir tilheyrðu)+
12 stóðu allir Levítasöngvararnir,+ sem voru undir stjórn Asafs,+ Hemans,+ Jedútúns+ og sona þeirra og bræðra, austan við altarið klæddir fötum úr fínu efni. Þeir héldu á málmgjöllum, hörpum og öðrum strengjahljóðfærum og með þeim voru 120 prestar sem blésu í lúðra.+
13 Lúðrablásararnir og söngvararnir lofuðu Jehóva og þökkuðu honum í sameiningu. Þeir lofuðu Jehóva með lúðrablæstri, málmgjöllum og öðrum hljóðfærum „því að hann er góður, tryggur kærleikur hans varir að eilífu“.+ Þá fyllti ský húsið, hús Jehóva.+
14 Prestarnir gátu ekki gegnt þjónustu sinni fyrir skýinu því að dýrð Jehóva fyllti hús hins sanna Guðs.+