Síðari Samúelsbók 6:1–23

  • Örkin flutt til Jerúsalem (1–23)

    • Ússa grípur í örkina og lætur lífið (6–8)

    • Míkal fyrirlítur Davíð (16, 20–23)

6  Davíð safnaði aftur saman öllum bestu hermönnum Ísraels, 30.000 mönnum.  Síðan lagði hann af stað ásamt öllu liði sínu til Baala í Júda til að sækja örk hins sanna Guðs.+ Frammi fyrir henni ákalla menn nafn Jehóva hersveitanna+ sem situr í hásæti sínu yfir kerúbunum.*+  En örk hins sanna Guðs var flutt á nýjum vagni+ úr húsi Abínadabs+ á hæðinni. Ússa og Ahjó synir Abínadabs stjórnuðu vagninum.  Þeir fluttu örk hins sanna Guðs úr húsi Abínadabs á hæðinni og Ahjó gekk á undan henni.  Davíð og allir Ísraelsmenn fögnuðu frammi fyrir Jehóva og léku á alls konar hljóðfæri úr einiviði, á hörpur og önnur strengjahljóðfæri,+ tambúrínur,+ sjálfóma* og málmgjöll.+  En þegar þeir komu á þreskivöll Nakóns lá við að uxarnir veltu vagninum. Þá rétti Ússa út höndina og greip í örk hins sanna Guðs.+  Reiði Jehóva blossaði upp gegn Ússa og hinn sanni Guð greiddi honum banahögg+ fyrir að sýna slíkt virðingarleysi.+ Hann lét þar lífið við hliðina á örk hins sanna Guðs.  En Davíð gramdist það* að reiði Jehóva skyldi hafa brotist út gegn Ússa. Staðurinn var nefndur Peres Ússa* og heitir það enn þann dag í dag.  Davíð varð hræddur við Jehóva+ þennan dag og sagði: „Hvernig á örk Jehóva að geta komist til mín?“+ 10  Davíð vildi ekki flytja örk Jehóva heim til sín í Davíðsborg.+ Í staðinn lét hann fara með hana heim til Óbeðs Edóms+ í Gat.* 11  Örk Jehóva var í húsi Óbeðs Edóms í Gat í þrjá mánuði og Jehóva blessaði Óbeð Edóm og allt heimilisfólk hans.+ 12  Davíð konungi var sagt: „Jehóva hefur blessað hús Óbeðs Edóms og allt sem hann á vegna arkar hins sanna Guðs.“ Davíð fór þá glaður í bragði heim til Óbeðs Edóms til að sækja örk hins sanna Guðs og flytja hana upp til Davíðsborgar.+ 13  Þegar þeir sem báru+ örk Jehóva höfðu gengið sex skref fórnaði hann nauti og alikálfi. 14  Davíð dansaði af öllum mætti frammi fyrir Jehóva, klæddur* línhökli.+ 15  Davíð og allir Ísraelsmenn fluttu örk+ Jehóva upp eftir með fagnaðarópum+ og hornablæstri.+ 16  En þegar örk Jehóva kom til Davíðsborgar leit Míkal+ dóttir Sáls út um gluggann og sá Davíð konung hoppa og dansa í hringi frammi fyrir Jehóva. Hún fyrirleit hann þá í hjarta sínu.+ 17  Örk Jehóva var nú borin inn og henni komið fyrir á sínum stað í tjaldinu sem Davíð hafði slegið upp fyrir hana.+ Síðan færði Davíð brennifórnir+ og samneytisfórnir+ frammi fyrir Jehóva.+ 18  Eftir að Davíð hafði fært brennifórnirnar og samneytisfórnirnar blessaði hann fólkið í nafni Jehóva hersveitanna. 19  Auk þess gaf hann öllu fólkinu, öllum Ísraelsmönnum, bæði körlum og konum, einn kringlóttan brauðhleif á mann, eina döðluköku og eina rúsínuköku. Síðan fór fólkið heim til sín. 20  Þegar Davíð kom heim til að blessa heimilisfólk sitt gekk Míkal+ dóttir Sáls út á móti honum og sagði: „Mikið var konungur Ísraels virðulegur í dag þegar hann hljóp um hálfnakinn frammi fyrir ambáttum þjóna sinna eins og vitleysingar gera!“+ 21  Davíð svaraði Míkal: „Það var frammi fyrir Jehóva sem ég fagnaði. Jehóva valdi mig fram yfir föður þinn og alla fjölskyldu hans og gerði mig að leiðtoga yfir þjóð sinni, Ísrael.+ Þess vegna vil ég fagna frammi fyrir Jehóva. 22  Ég ætla að lítillækka mig enn frekar og verða smár í eigin augum en ambáttirnar sem þú nefndir munu meta mig mikils.“ 23  En Míkal+ dóttir Sáls var barnlaus til æviloka.

Neðanmáls

Eða hugsanl. „á milli kerúbanna“.
Fornt slagverkshljóðfæri, eins konar hringla.
Eða „féll það þungt“.
Sem þýðir ‚brýst út gegn Ússa‘.
Ef til vill er átt við borgina Gat Rimmon.
Orðrétt „gyrtur“.