Síðara bréfið til Tímóteusar 3:1–17
3 En það máttu vita að á síðustu dögum+ verða hættulegir og erfiðir tímar.
2 Menn verða eigingjarnir, elska peninga, verða montnir, hrokafullir, lastmálir, óhlýðnir foreldrum, vanþakklátir, ótrúir,
3 kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberar, hafa enga sjálfstjórn, grimmir, elska ekki hið góða,
4 sviksamir, þverir, yfirlætisfullir og elska nautnir frekar en Guð.
5 Út á við sýnast þeir guðræknir en þeir láta trúna ekki hafa nein áhrif á líf sitt.*+ Forðastu þá.
6 Úr hópi þeirra koma menn sem smeygja sér inn á heimilin og ná á sitt band trúgjörnum og syndugum konum sem láta leiðast af ýmsum girndum.
7 Þær eru alltaf að læra en geta aldrei fengið nákvæma þekkingu á sannleikanum.
8 Þessir menn standa á móti sannleikanum eins og Jannes og Jambres stóðu gegn Móse. Hugarfar slíkra manna er gerspillt og þeir hafa ekki velþóknun Guðs því að þeir lifa ekki samkvæmt trúnni.
9 En þeim verður ekkert ágengt framar því að heimska þeirra verður öllum augljós eins og gerðist hjá þessum tveim mönnum.+
10 Þú hefur hins vegar farið vel eftir því sem ég kenndi, fylgt sömu lífsstefnu og ég+ og haft sömu markmið, trú, þolinmæði, kærleika og þolgæði.
11 Þú veist líka af þeim ofsóknum og þjáningum sem ég varð fyrir í Antíokkíu,+ Íkóníum+ og Lýstru.+ Ég gekk í gegnum þessar ofsóknir en Drottinn bjargaði mér úr þeim öllum.+
12 Já, allir sem vilja lifa guðrækilegu lífi sem lærisveinar Krists Jesú verða ofsóttir.+
13 En vondir menn og svikarar munu ganga æ lengra í illskunni. Þeir leiða aðra á villigötur og láta sjálfir leiðast afvega.+
14 Þú skalt hins vegar halda þig við það sem þú hefur lært og látið sannfærast um+ því að þú veist af hverjum þú lærðir það
15 og þú hefur þekkt heilagar ritningar frá blautu barnsbeini.+ Þær geta veitt þér visku svo að þú bjargist vegna trúarinnar á Krist Jesú.+
16 Öll Ritningin er innblásin af Guði+ og gagnleg til að kenna,+ áminna, leiðrétta* og aga fólk í að gera það sem er rétt,+
17 til að sá sem þjónar Guði sé fullkomlega hæfur og albúinn til allra góðra verka.