Þriðja Mósebók 15:1–33

  • Óhrein útferð frá kynfærum (1–33)

15  Jehóva sagði nú við Móse og Aron:  „Segið Ísraelsmönnum: ‚Ef maður er með útferð frá kynfærum* er hann óhreinn.+  Hvort sem útferðin er viðvarandi eða stíflar kynfærin er hann óhreinn.  Rúm sem maður með útferð leggst í verður óhreint og allt sem hann sest á verður óhreint.  Sá sem snertir rúm hans á að þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds.+  Sá sem sest á eitthvað sem maður með útferð hefur setið á skal þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds.  Sá sem snertir mann með útferð á að þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds.  Ef maður með útferð hrækir á hreinan mann skal sá þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds.  Hnakkur sem maður með útferð situr í verður óhreinn. 10  Sá sem snertir eitthvað sem maðurinn hefur setið á verður óhreinn til kvölds og sá sem tekur það upp skal þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 11  Ef sá sem er með útferð+ hefur ekki þvegið sér um hendurnar í vatni og snertir einhvern á sá að þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 12  Ef maður með útferð snertir leirker á að brjóta það en ílát úr tré skal þvegið í vatni.+ 13  Þegar útferðin, sem gerði manninn óhreinan, stöðvast á hann að láta sjö daga líða og síðan skal hann þvo föt sín og baða sig í fersku vatni. Eftir það er hann hreinn.+ 14  Á áttunda degi á hann að taka tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur,+ ganga fram fyrir Jehóva við inngang samfundatjaldsins og færa prestinum þær. 15  Presturinn á að fórna þeim, annarri í syndafórn og hinni í brennifórn, og friðþægja fyrir manninn frammi fyrir Jehóva vegna útferðarinnar. 16  Ef maður fær sáðlát á hann að baða allan líkama sinn í vatni og vera óhreinn til kvölds.+ 17  Ef sáðvökvi kemur á flík eða eitthvað úr leðri á hann að þvo það í vatni og það verður óhreint til kvölds. 18  Þegar maður hefur samfarir við konu og fær sáðlát eiga þau að baða sig í vatni og vera óhrein til kvölds.+ 19  Þegar kona er á blæðingum skal hún vera óhrein í sjö daga.+ Sá sem snertir hana verður óhreinn til kvölds.+ 20  Allt sem hún leggst á meðan hún er óhrein af blæðingum verður óhreint og allt sem hún sest á verður óhreint.+ 21  Sá sem snertir rúm hennar á að þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 22  Sá sem snertir eitthvað sem hún hefur setið á skal þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 23  Ef einhver snertir rúm hennar eða eitthvað annað sem hún hefur setið á verður hann óhreinn til kvölds.+ 24  Og ef maður hefur samfarir við hana og tíðablóð hennar kemur á hann+ verður hann óhreinn í sjö daga og hvert rúm sem hann leggst í verður óhreint. 25  Ef kona er á blæðingum í marga daga+ á öðrum tíma en hún er venjulega á blæðingum+ eða ef blæðingarnar standa lengur en venjulegar blæðingar er hún óhrein alla þá daga sem henni blæðir. Hún er óhrein eins og þegar hún er á tíðablæðingum. 26  Rúm sem hún liggur í meðan henni blæðir verður óhreint+ og allt sem hún sest á verður óhreint eins og þegar hún er á tíðablæðingum. 27  Sá sem snertir eitthvað af þessu verður óhreinn og á að þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds.+ 28  En þegar blæðingarnar stöðvast á hún að láta sjö daga líða og eftir það er hún hrein.+ 29  Á áttunda degi skal hún taka tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur+ og færa þær prestinum við inngang samfundatjaldsins.+ 30  Presturinn á að færa aðra í syndafórn og hina í brennifórn og friðþægja fyrir konuna frammi fyrir Jehóva vegna óhreinna blæðinga hennar.+ 31  Þannig skuluð þið vernda Ísraelsmenn gegn* óhreinleika sínum svo að þeir deyi ekki fyrir að óhreinka tjaldbúð mína sem er meðal þeirra.+ 32  Þetta eru lögin um mann sem er með útferð, mann sem er óhreinn vegna sáðláta,+ 33  konu sem er óhrein vegna blæðinga,+ mann eða konu sem er með útferð eða blæðingar+ og mann sem hefur samfarir við óhreina konu.‘“

Neðanmáls

Orðrétt „holdi sínu“.
Eða „aðgreina Ísraelsmenn frá“.