Þriðja Mósebók 3:1–17

  • Samneytisfórnin (1–17)

    • Ekki má borða fitu eða blóð (17)

3  Ef fórn hans er samneytisfórn*+ og hann fórnar nautgrip, hvort heldur karl- eða kvendýri, á hann að bera gallalaust dýr fram fyrir Jehóva.  Hann á að leggja höndina á höfuð fórnardýrsins, því skal slátrað við inngang samfundatjaldsins og synir Arons, prestarnir, eiga að sletta blóðinu á allar hliðar altarisins.  Hann á að færa Jehóva hluta af samneytisfórninni sem eldfórn:+ netjuna,* allan garnamörinn+  og bæði nýrun ásamt nýrnamörnum sem er við lendarnar. Með nýrunum á hann einnig að taka fituna á lifrinni.+  Synir Arons eiga að brenna það á altarinu ofan á brennifórninni á viðnum sem er á eldinum.+ Þetta er eldfórn, ljúfur* ilmur fyrir Jehóva.+  Ef hann færir Jehóva sauð eða geit að samneytisfórn á það að vera gallalaust karl- eða kvendýr.+  Ef hann færir hrútlamb að fórn á hann að bera það fram fyrir Jehóva.  Hann á að leggja höndina á höfuð fórnardýrsins og því skal slátrað fyrir framan samfundatjaldið. Synir Arons eiga að sletta blóðinu á allar hliðar altarisins.  Hann á að færa Jehóva fitu samneytisfórnarinnar að eldfórn.+ Hann á að skera feitan dindilinn af við rófubeinið og taka netjuna, allan garnamörinn 10  og bæði nýrun ásamt nýrnamörnum sem er við lendarnar. Með nýrunum á hann einnig að taka fituna á lifrinni.+ 11  Og presturinn á að brenna það á altarinu sem fæðu,* sem eldfórn handa Jehóva.+ 12  Ef hann fórnar geit á hann að bera hana fram fyrir Jehóva. 13  Hann á að leggja höndina á höfuð hennar og henni skal slátrað fyrir framan samfundatjaldið. Synir Arons eiga að sletta blóðinu á allar hliðar altarisins. 14  Þetta á hann að færa Jehóva sem eldfórn: netjuna, allan garnamörinn+ 15  og bæði nýrun ásamt nýrnamörnum sem er við lendarnar. Með nýrunum á hann einnig að taka fituna á lifrinni. 16  Presturinn á að brenna það á altarinu sem fæðu.* Þetta er eldfórn, ljúfur* ilmur fyrir Guð. Öll fitan tilheyrir Jehóva.+ 17  Þetta er varanlegt ákvæði kynslóð eftir kynslóð, hvar sem þið búið: Þið megið ekki borða nokkra fitu né nokkurt blóð.‘“+

Neðanmáls

Eða „friðarfórn“.
Mörhimna utan um innyfli dýra.
Orðrétt „sefandi“.
Orðrétt „brauð“, það er, sem hluta Guðs af samneytisfórninni.
Orðrétt „brauð“, það er, sem hluta Guðs af samneytisfórninni.
Orðrétt „sefandi“.