Fjórða Mósebók 36:1–13

  • Lög um hjónabönd kvenna sem erfa land (1–13)

36  Ættarhöfðingjar afkomenda Gíleaðs, sem voru af ættum sona Jósefs, gengu nú fram, en Gíleað var sonur Makírs+ Manassesonar. Þeir gengu fyrir Móse og höfðingja Ísraelsmanna  og sögðu: „Jehóva sagði þér, herra, að skipta landinu með hlutkesti+ í erfðalönd milli Ísraelsmanna, og Jehóva fól þér, herra, að gefa dætrum Selofhaðs bróður okkar erfðaland hans.+  Ef þær giftast mönnum af annarri ættkvísl Ísraels verður erfðaland kvennanna tekið frá erfðalandi feðra okkar og bætt við erfðaland þeirrar ættkvíslar sem þær tilheyra þá. Þannig yrði það tekið frá erfðalandinu sem við fáum með hlutkesti.  Á fagnaðarári+ Ísraelsmanna bætist erfðaland kvennanna við erfðaland þeirrar ættkvíslar sem þær tilheyra þá þannig að erfðaland þeirra verður tekið frá erfðalandi ættkvíslar feðra okkar.“  Móse flutti þá Ísraelsmönnum þessi fyrirmæli að skipun Jehóva: „Ættkvísl sona Jósefs hefur rétt fyrir sér.  Þetta eru fyrirmæli Jehóva um dætur Selofhaðs: ‚Þær mega giftast hverjum sem þær vilja en þó aðeins að hann sé af ætt innan ættkvíslar föður þeirra.  Ekkert erfðaland Ísraelsmanna má ganga frá einni ættkvísl til annarrar því að Ísraelsmenn eiga að halda erfðalandi ættkvíslar forfeðra sinna.  Dóttir sem erfir eignarland meðal ættkvísla Ísraels á að giftast manni af ættkvísl föður síns+ svo að Ísraelsmenn haldi erfðalandi forfeðra sinna.  Ekkert erfðaland á að ganga frá einni ættkvísl til annarrar því að ættkvíslir Ísraels eiga að halda erfðalandi sínu.‘“ 10  Dætur Selofhaðs gerðu eins og Jehóva gaf Móse fyrirmæli um.+ 11  Þær Mahla, Tirsa, Hogla, Milka og Nóa, dætur Selofhaðs,+ giftust sonum föðurbræðra sinna. 12  Þær giftust mönnum af ætt Manasse Jósefssonar til að erfðaland þeirra héldist í ættkvísl föðurættar þeirra. 13  Þetta eru þau boðorð og lög sem Jehóva gaf Ísraelsmönnum fyrir milligöngu Móse á eyðisléttum Móabs við Jórdan gegnt Jeríkó.+

Neðanmáls