Esekíel 19:1–14

  • Sorgarljóð um höfðingja Ísraels (1–14)

19  „Syngdu þetta sorgarljóð um höfðingja Ísraels:   ‚Móðir þín var eins og ljónynja meðal ljóna. Hún lá meðal sterkra ungljóna og ól upp hvolpa sína.   Einn hvolpanna sem hún kom upp varð sterkt ungljón.+ Það lærði að slíta í sundur bráð,það át jafnvel menn.   Þjóðir fréttu af því og fönguðu það í gryfjuog þær drógu það með krókum til Egyptalands.+   Ljónynjan beið en skildi að lokum að það myndi ekki snúa aftur. Hún tók þá annan hvolp og sendi hann út til að verða sterkt ungljón.   Hann ráfaði einnig um meðal ljónanna og varð sterkt ungljón. Það lærði að slíta í sundur bráð og át jafnvel menn.+   Það ráfaði um meðal víggirtra turna þeirra og herjaði á borgirnarog öskur þess ómuðu um mannlaust landið.+   Þjóðir af svæðunum í kring héldu gegn því, köstuðu neti yfir þaðog fönguðu það í gryfju.   Þær drógu það með krókum inn í búr og fóru með það til konungs Babýlonar. Þar var það lokað inni svo að öskur þess heyrðust ekki lengur á fjöllum Ísraels. 10  Móðir þín var eins og vínviður,*+ gróðursettur við vatn. Hann bar margar greinar og líka ávöxt því að nóg var af vatni. 11  Greinarnar urðu sterkar svo að hægt var að nota þær í veldissprota. Hann óx og gnæfði yfir hin trénog varð svo hár og laufmikill að hann sást langt að. 12  En í reiði var hann rifinn upp með rótum+ og kastað til jarðarog ávöxtur hans þornaði upp í austanvindi. Sterkar greinarnar voru slitnar af, þær þornuðu upp+ og eldur gleypti þær.+ 13  Nú er hann gróðursettur í óbyggðunum,í þurru og þyrstu landi.+ 14  Eldurinn breiddist út frá greinunum og gleypti sprotana og ávöxtinn,engin sterk grein var eftir, enginn veldissproti.+ Þetta er sorgarljóð og sorgarljóð skal það vera.‘“

Neðanmáls

Orðrétt „vínviður í blóði þínu“.