Esterarbók 10:1–3

  • Mordekaí valdamikill (1–3)

10  Ahasverus konungur kom á nauðungarvinnu í landinu og á eyjum hafsins.  Öll afrek hans og stórvirki eru skráð í bókinni um sögu+ konunga Medíu og Persíu,+ auk ítarlegrar lýsingar á þeirri háu stöðu sem konungur veitti Mordekaí.+  Mordekaí Gyðingur var næstur Ahasverusi konungi að völdum. Hann var mikils metinn* meðal Gyðinga og virtur af öllum ættbræðrum sínum. Hann bar hag þjóðar sinnar fyrir brjósti og vann að velferð allra afkomenda hennar.

Neðanmáls

Eða „mikill“.