Esterarbók 3:1–15

  • Konungur upphefur Haman (1–4)

  • Haman áformar að útrýma Gyðingum (5–15)

3  Þegar fram liðu stundir hækkaði Ahasverus konungur Haman,+ son Hamdata Agagíta,+ í tign og veitti honum æðri stöðu en öllum hinum höfðingjunum sem voru með honum.+  Allir þjónar konungs sem voru í konungshliðinu hneigðu sig og féllu fram fyrir Haman því að konungur hafði fyrirskipað það. En Mordekaí neitaði að hneigja sig og falla á kné.  Þjónar konungs sem voru í konungshliðinu spurðu Mordekaí: „Af hverju hlýðirðu ekki skipun konungs?“  Þeir spurðu hann um þetta dag eftir dag en hann hlustaði ekki á þá. Þá sögðu þeir Haman frá þessu til að sjá hvort Mordekaí kæmist upp með það,+ en Mordekaí hafði sagt þeim að hann væri Gyðingur.+  Þegar Haman sá að Mordekaí hneigði sig hvorki né féll fram fyrir honum reiddist hann heiftarlega.+  Hann vildi taka Mordekaí af lífi* en fannst það ekki nóg því að menn höfðu sagt honum hverrar þjóðar Mordekaí var. Haman fór þess vegna að velta fyrir sér hvernig hann gæti útrýmt Gyðingum í öllu ríki Ahasverusar, allri þjóð Mordekaí.  Í fyrsta mánuðinum, það er nísan,* á 12. ári+ Ahasverusar konungs vörpuðu menn púr+ (það er hlutkesti) frammi fyrir Haman til að ákveða mánuð og dag. Hluturinn féll á 12. mánuðinn, það er adar.*+  Haman sagði þá við Ahasverus konung: „Meðal þjóðanna í skattlöndum ríkis þíns+ er ein þjóð sem hefur dreifst víða.+ Lög hennar eru ólík lögum allra annarra þjóða og fólkið fylgir ekki lögum konungs. Það er ekki konungi í hag að láta það afskiptalaust.  Ef konungi hugnast gefðu þá út skriflega tilskipun um að þessari þjóð verði útrýmt. Ég skal greiða embættismönnunum 10.000 silfurtalentur* til að leggja í fjárhirslu konungs.“* 10  Þá dró konungur innsiglishringinn+ af hendi sér og fékk hann Haman,+ syni Hamdata Agagíta,+ óvini Gyðinga. 11  Konungur sagði við Haman: „Þú færð bæði silfrið og fólkið og þú mátt fara með það eins og þú vilt.“ 12  Ritarar konungs+ voru kallaðir saman á 13. degi fyrsta mánaðarins. Þeir skráðu+ öll fyrirmæli Hamans til æðstu embættismanna* konungs, landstjóra skattlandanna og höfðingja hverrar þjóðar, til hvers skattlands með letri þess og til hverrar þjóðar á tungumáli hennar. Þetta var skrifað í nafni Ahasverusar konungs og innsiglað með innsiglishring hans.+ 13  Bréfin voru send með hraðboðum til allra skattlanda konungs. Fyrirmælin voru þau að drepa, eyða og útrýma skyldi öllum Gyðingum, jafnt ungum sem öldnum, börnum og konum, á einum degi, 13. degi 12. mánaðarins, það er adarmánaðar,+ og leggja skyldi hald á eigur þeirra.+ 14  Skjalið skyldi hafa lagagildi í öllum skattlöndunum og afrit skyldi birt öllum þjóðum svo að þær yrðu viðbúnar á þeim degi. 15  Lögin voru gefin út í virkisborginni* Súsa+ og hraðboðarnir flýttu sér af stað+ að boði konungs. Konungur og Haman settust að drykkju en íbúar Súsa voru skelfingu lostnir.

Neðanmáls

Orðrétt „leggja hendur á Mordekaí“.
Talenta jafngilti 34,2 kg. Sjá viðauka B14.
Eða hugsanl. „Ég skal greiða 10.000 talentur í fjárhirslu konungs handa þeim sem vinna þetta verk“.
Eða „til satrapa“. Sjá orðaskýringar.
Eða „höllinni“.