Bréfið til Galatamanna 5:1–26
5 Kristur frelsaði okkur til að við hlytum slíkt frelsi. Verið því staðföst+ og látið ekki leggja þrælkunarok á ykkur aftur.+
2 Takið eftir hvað ég, Páll, segi ykkur: Ef þið látið umskerast kemur Kristur ykkur ekki að neinu gagni.+
3 Ég segi enn og aftur við hvern þann mann sem lætur umskerast að hann er skuldbundinn til að halda lögin í heild sinni.+
4 Þið eruð orðin viðskila við Krist, þið sem reynið að hljóta réttlætingu með hjálp laganna.+ Þið hafið sagt skilið við einstaka góðvild hans.
5 En við fyrir okkar leyti bíðum óþreyjufull og vongóð með hjálp andans eftir að réttlætast vegna trúar.
6 Hjá þeim sem eru sameinaðir Kristi Jesú hefur það ekkert gildi að vera umskorinn eða óumskorinn.+ Það sem skiptir máli er trú sem birtist í kærleika.
7 Þið hlupuð vel.+ Hver kom í veg fyrir að þið hélduð áfram að hlýða sannleikanum?
8 Hver taldi ykkur hughvarf? Ekki sá sem kallaði ykkur.
9 Lítið súrdeig gerjar allt deigið.+
10 Ég treysti að þið sem eruð sameinuð Drottni+ hugsið áfram eins og ég, en sá sem kemur ykkur úr jafnvægi,+ hver sem hann er, fær verðskuldaðan dóm.
11 Hvað mig snertir, bræður og systur, ef ég væri enn að boða umskurð hvers vegna er ég þá ofsóttur? Boðunin um kvalastaurinn* væri þá engin hneykslunarhella.+
12 Ég vildi óska að þeir sem reyna að koma ykkur í uppnám myndu vana sjálfa sig.*
13 Þið voruð kölluð til frelsis, bræður og systur, en notið ekki þetta frelsi sem tilefni til að svala girndum holdsins+ heldur þjónið hvert öðru í kærleika.+
14 Lögin í heild sinni uppfyllast í* þessu eina boðorði: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“+
15 En ef þið bítist og ráðist hvert á annað+ gætið þá að ykkur, þið gætuð tortímt hvert öðru.+
16 Ég segi ykkur: Lifið í andanum,+ þá látið þið ekki undan neinum girndum holdsins.+
17 Holdið með girndum sínum stendur gegn andanum og andinn gegn holdinu. Þetta tvennt stendur hvort gegn öðru þannig að þið gerið ekki það sem þið viljið gera.+
18 Auk þess eruð þið ekki undir lögum ef þið látið andann leiða ykkur.
19 Verk holdsins eru augljós. Þau eru kynferðislegt siðleysi,*+ óhreinleiki, blygðunarlaus hegðun,*+
20 skurðgoðadýrkun, dulspeki,*+ fjandskapur, deilur, afbrýði, reiðiköst, ágreiningur, sundrung, sértrúarklofningur,
21 öfund, ofdrykkja,+ svallveislur og annað þessu líkt.+ Ég vara ykkur við, eins og ég hef áður gert, að þeir sem stunda slíkt erfa ekki ríki Guðs.+
22 Ávöxtur andans er hins vegar kærleikur, gleði, friður, þolinmæði,* góðvild, gæska,+ trú,
23 mildi og sjálfstjórn.+ Gegn slíku eru engin lög.
24 Og þeir sem tilheyra Kristi Jesú hafa staurfest holdið með ástríðum þess og girndum.+
25 Ef við lifum í andanum skulum við líka hegða okkur í samræmi við leiðsögn andans.+
26 Lítum ekki of stórt á sjálf okkur+ þannig að við förum að keppa hvert við annað+ og öfunda hvert annað.
Neðanmáls
^ Sjá orðaskýringar.
^ Eða „gelda sjálfa sig; verða geldingar“, og verða þar með óhæfir til að fara eftir lögunum sem þeir aðhylltust.
^ Eða hugsanl. „má draga saman með“.
^ Á grísku pornei′a. Sjá orðaskýringar.
^ Eða „ósvífin hegðun“. Á grísku asel′geia. Sjá orðaskýringar.
^ Eða „spíritismi; galdrar“. Á grísku farmakí′a sem vísar til notkunar lyfja eða fíkniefna.
^ Eða „langlyndi“.