Hósea 10:1–15

  • Ísrael, úrkynjuðum vínviði, verður refsað (1–15)

    • Sáð og uppskorið (12, 13)

10  „Ísrael er úrkynjaður* vínviður sem ber ávöxt.+ Því meiri ávöxt sem hann ber því fleiri ölturu reisir hann,+því betri sem uppskera landsins er því glæsilegri gerir hann helgisúlur sínar.+   Hjörtu þeirra eru hræsnisfull,nú verða þeir fundnir sekir. Guð mun brjóta ölturu þeirra og eyðileggja súlur þeirra.   Nú munu þeir segja: ‚Við höfum engan konung+ því að við óttuðumst ekki Jehóva. Og hvað getur konungur gert fyrir okkur?‘   Þeir tala innantóm orð, sverja falska eiða+ og gera sáttmála. Dómar þeirra eru eins og eitrað illgresi sem sprettur í plógförum á akri.+   Íbúar Samaríu munu óttast um kálfslíkneskið í Betaven.+ Fólkið mun syrgja þaðog eins falsguðaprestarnir sem glöddust yfir því og dýrð þessþví að það verður tekið frá þeim og flutt í útlegð.   Líkneskið verður flutt til Assýríu sem gjöf handa stórkonungi.+ Efraím verður niðurlægðurog Ísrael skammast sín fyrir að hafa fylgt óviturlegum ráðum.+   Samaría og konungur hennar verða úr sögunni*+eins og afskorin grein sem flýtur á vatni.   Fórnarhæðunum í Betaven,+ synd Ísraels,+ verður eytt.+ Þyrnar og þistlar munu vaxa á ölturum hans.+ Fólk mun segja við fjöllin: ‚Hyljið okkur!‘ og við hæðirnar: ‚Hrynjið yfir okkur!‘+   Allt frá dögum Gíbeu hefurðu syndgað,+ Ísrael. Þar stendurðu enn í sömu sporum. Stríð gerði ekki út af við ódæðismennina í Gíbeu. 10  Ég mun líka aga þá þegar mér þóknast. Þjóðir munu safnast gegn þeimþegar báðar syndir þeirra verða lagðar á þá.* 11  Efraím var tamin kvíga sem naut þess að þreskja. Ég hlífði fallegum hálsi hennar. Nú spenni ég Efraím fyrir plóginn.+ Júda skal plægja, Jakob skal herfa. 12  Sáið réttlæti og uppskerið tryggan kærleika,plægið land til ræktunar+meðan enn er tími til að leita Jehóva.+ Þá kemur hann og fræðir ykkur um réttlæti.+ 13  En þið hafið plægt illskuog uppskorið ranglæti.+ Þið hafið borðað ávöxt blekkingarinnar. Þú treystir á sjálfan þigog þína mörgu hermenn. 14  Orrustugnýr mun rísa gegn þjóð þinniog víggirtar borgir þínar verða allar lagðar í eyði+eins og þegar Salman eyddi Bet Arbelá orrustudeginum þegar mæður voru brytjaðar niður ásamt börnum sínum. 15  Þannig fer fyrir þér, Betel,+ vegna þess að illska þín er mikil. Í dögun verður gert út af við* konung Ísraels.“+

Neðanmáls

Eða hugsanl. „gróskumikill“.
Orðrétt „verða látin þagna“.
Það er, þegar refsingin verður lögð á þá eins og ok.
Orðrétt „þaggað niður í“.