Hósea 3:1–5

  • Hósea kaupir aftur lausláta konu sína (1–3)

  • Ísrael snýr aftur til Jehóva (4, 5)

3  Nú sagði Jehóva við mig: „Farðu aftur og elskaðu konuna sem er elskuð af öðrum manni og fremur hjúskaparbrot,+ eins og Jehóva elskar Ísraelsmenn+ þótt þeir snúi sér til annarra guða+ og elski rúsínukökur.“*  Þá keypti ég hana fyrir 15 silfurpeninga og einn og hálfan kómer* af byggi.  Síðan sagði ég við hana: „Þú átt að vera mín í langan tíma.* Þú mátt ekki stunda vændi* né hafa mök við annan mann og ég hef ekki heldur mök við þig.“  Á sama hátt verða Ísraelsmenn í langan tíma* án konungs+ og höfðingja, án fórnar og helgisúlu og án hökuls+ og húsgoða.*+  Eftir það snúa Ísraelsmenn aftur og leita Jehóva Guðs síns+ og Davíðs konungs síns.+ Þeir koma skjálfandi til Jehóva og gæsku hans við lok daganna.*+

Neðanmáls

Það er, þær sem notaðar voru við falsguðadýrkun.
Kómer jafngilti 220 l. Sjá viðauka B14.
Orðrétt „marga daga“.
Eða „siðleysi; lauslæti“.
Eða „skurðgoða“.
Orðrétt „marga daga“.
Eða „á síðustu dögum“.