Hósea 5:1–15

  • Dómur yfir Efraím og Júda (1–15)

5  „Heyrið þetta, prestar,+takið eftir, Ísraelsmenn,hlustaðu, konungsætt,*því að dómurinn beinist gegn ykkurþar sem þið eruð snara fyrir Mispaog útbreitt net yfir Tabor.+   Hinir fráhverfu* eru djúpt sokknir í að slátraog ég vara þá alla við.*   Ég þekki Efraímog Ísrael er mér ekki hulinn. Nú ertu orðinn lauslátur,* Efraím,Ísrael hefur óhreinkað sig.+   Verk þeirra hindra þá í að snúa aftur til Guðs sínsþví að lauslætisandi* ríkir meðal þeirra+og þeir vilja ekki kannast við Jehóva.   Hroki Ísraels vitnar gegn honum.*+ Ísrael og Efraím hafa báðir hrasað vegna sektar sinnarog Júda hefur hrasað með þeim.+   Þeir lögðu af stað með sauði sína og naut til að leita Jehóvaen fundu hann ekki. Hann hafði yfirgefið þá.+   Þeir hafa svikið Jehóva+því að þeir hafa eignast framandi syni.* Á einum mánuði verður þeim eytt* ásamt jörðum* þeirra.   Blásið í horn+ í Gíbeu, lúður í Rama!+ Hrópið heróp í Betaven:+ Af stað, Benjamín!   Efraím, fólk mun hrylla við þér á degi refsingarinnar.+ Ég hef tilkynnt ættkvíslum Ísraels það sem er óhjákvæmilegt að gerist. 10  Höfðingjar Júda eru eins og þeir sem færa landamörk.+ Ég úthelli heift minni yfir þá eins og vatni. 11  Efraím er kúgaður, réttvísin kremur hannþví að hann var ákveðinn í að fylgja andstæðingi sínum.+ 12  Þess vegna var ég Efraím eins og mölflugaog Júdamönnum eins og rotnun. 13  Þegar Efraím sá sjúkdóm sinn og Júda sár sittleitaði Efraím til Assýríu+ og sendi boðbera til stórkonungs. En hann gat ekki læknað ykkur,hann gat ekki grætt sár ykkar. 14  Ég verð Efraím eins og ungljónog Júdamönnum eins og sterkt ljón. Ég mun sjálfur rífa þá sundur og hverfa á braut.+ Ég dreg þá burt og enginn getur bjargað þeim.+ 15  Ég fer burt og sný aftur á minn stað þar til þeir hafa goldið fyrir synd sína. Þá munu þeir sækjast eftir velvild minni.*+ Þeir munu leita til mín í neyð sinni.“+

Neðanmáls

Orðrétt „hús konungs“.
Eða „Uppreisnarseggirnir“.
Eða „mun aga þá alla“.
Eða „hefurðu stundað siðleysi (vændi)“.
Eða „siðleysisandi; vændisandi“.
Orðrétt „framan í hann“.
Hugsanlega voru þetta synir erlendra kvenna sem voru þar af leiðandi fjarlægir Guði.
Eða „erfðahlutum“.
Orðrétt „Nú skal mánuður eyða þeim“.
Orðrétt „leita auglits míns“.