Hósea 7:1–16

  • Illska Efraíms (1–16)

    • Enginn kemst undan neti Guðs (12)

7  „Í hvert skipti sem ég ætla að lækna Ísraelkemur sekt Efraíms í ljós+og illska Samaríu+því að þeir eru svikulir.+ Þjófar brjótast inn og ræningjaflokkar ræna úti fyrir.+   En þeir hugsa ekki um að ég man eftir öllum illskuverkum þeirra.+ Nú eru verk þeirra allt í kringum þá,þau blasa við mér.   Þeir gleðja konunginn með illsku sinniog höfðingjana með svikum sínum.   Þeir fremja allir hjúskaparbrot. Þeir brenna eins og ofn sem bakari kyndir. Hann þarf ekki að skara í eldinn meðan hann hnoðar deigið og lætur það hefast.   Á degi konungs okkar urðu höfðingjarnir veikir– vínið gerði þá ævareiða.+ Hann rétti háðfuglum höndina.   Þeir nálgast með hjörtum sem brenna eins og ofn.* Bakarinn sefur alla nóttina,um morguninn logar glatt í ofninum.   Allir eru þeir heitir eins og ofn,þeir gleypa leiðtoga* sína. Allir konungar þeirra eru fallnir,+enginn þeirra kallar á mig.+   Efraím blandast þjóðunum.+ Efraím er eins og flatkaka sem ekki er snúið.   Ókunnugir hafa gleypt kraft hans+ en hann veit ekki af því. Gráa hárið er orðið hvítt en hann tekur ekki eftir því. 10  Hroki Ísraels vitnar gegn honum+en þeir hafa ekki snúið aftur til Jehóva Guðs síns+né leitað hans þrátt fyrir allt þetta. 11  Efraím er eins og einföld og óskynsöm dúfa.+ Þeir kalla á Egyptaland,+ leita til Assýríu.+ 12  Ég kasta neti mínu yfir þá hvert sem þeir fara,dreg þá niður eins og fugla himins. Ég aga þá eins og ég hef varað söfnuð þeirra við.+ 13  Illa fer fyrir þeim því að þeir hafa flúið mig! Ógæfa komi yfir þá því að þeir hafa syndgað gegn mér! Ég ætlaði að endurleysa þá en þeir lugu upp á mig.+ 14  Þeir hrópuðu ekki til mín á hjálp af einlægu hjarta+þótt þeir kveinuðu í rúmum sínum. Þeir skáru sig til að fá korn og nýtt vín,þeir snúast gegn mér. 15  Ég leiðbeindi þeim og styrkti hendur þeirraen samt eru þeir á móti mér og hafa illt í hyggju. 16  Þeir sneru sér en þó ekki að neinu háleitara.* Þeir brugðust eins og slakur bogi.+ Höfðingjar þeirra falla fyrir sverði vegna ósvífinnar tungu sinnar. Þess vegna verða þeir hafðir að háði í Egyptalandi.“+

Neðanmáls

Eða hugsanl. „Hjörtu þeirra eru eins og ofn þegar þeir nálgast með illt í hyggju“.
Orðrétt „dómara“.
Það er, ekki að háleitri og sannri tilbeiðslu.