Jósúabók 12:1–24

  • Konungar austan Jórdanar sigraðir (1–6)

  • Konungar vestan Jórdanar sigraðir (7–24)

12  Þetta eru konungar landsins sem Ísraelsmenn unnu, landsins sem þeir tóku til eignar austan megin við Jórdan og náði frá Arnondal+ að Hermonfjalli+ og yfir allan austurhluta Araba:+  Síhon+ konungur Amoríta sem bjó í Hesbon og réð yfir Aróer+ á brún Arnondals. Allt svæðið frá miðjum Arnondal+ að Jabbokdal, sem myndar landamæri Ammóníta, tilheyrði honum, það er að segja hálft Gíleað.  Hann réð einnig yfir austurhluta Araba frá Kinneretvatni*+ til Arabavatns, það er Saltasjávar,* í austur í átt að Bet Jesímót og suður að hlíðum Pisga.+  Þeir tóku einnig land Ógs,+ konungs í Basan, sem var einn af síðustu Refaítunum+ og bjó í Astarót og Edreí.  Hann réð yfir Hermonfjalli, Salka og öllu Basan+ að landamærum Gesúríta og Maakatíta,+ og yfir hálfu Gíleað að landi Síhons, konungs í Hesbon.+  Móse þjónn Jehóva og Ísraelsmenn sigruðu þá+ og eftir það gaf Móse þjónn Jehóva Rúbenítum, Gaðítum og hálfri ættkvísl Manasse land þeirra til eignar.+  Þetta eru konungar landsins sem Jósúa og Ísraelsmenn unnu vestan megin við Jórdan frá Baal Gað+ í Líbanonsdal+ að Halakfjalli+ sem liggur að Seír,+ landsins sem Jósúa skipti síðan milli ættkvísla Ísraels. Hver ættkvísl fékk sinn hlut+  í fjalllendinu, Sefela, Araba, hlíðunum, óbyggðunum og Negeb+ – land Hetíta, Amoríta,+ Kanverja, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta.+ Konungarnir voru:   Konungurinn í Jeríkó+ einn, konungurinn í Aí,+ sem var hjá Betel, einn, 10  konungurinn í Jerúsalem einn, konungurinn í Hebron+ einn, 11  konungurinn í Jarmút einn, konungurinn í Lakís einn, 12  konungurinn í Eglon einn, konungurinn í Geser+ einn, 13  konungurinn í Debír+ einn, konungurinn í Geder einn, 14  konungurinn í Horma einn, konungurinn í Arad einn, 15  konungurinn í Líbna+ einn, konungurinn í Adúllam einn, 16  konungurinn í Makkeda+ einn, konungurinn í Betel+ einn, 17  konungurinn í Tappúa einn, konungurinn í Hefer einn, 18  konungurinn í Afek einn, konungurinn í Saron einn, 19  konungurinn í Madon einn, konungurinn í Hasór+ einn, 20  konungurinn í Simrón Meróm einn, konungurinn í Aksaf einn, 21  konungurinn í Taanak einn, konungurinn í Megiddó einn, 22  konungurinn í Kedes einn, konungurinn í Jokneam+ í Karmel einn, 23  konungurinn í Dór+ á Dórhæðum einn, konungurinn í Gojím í Gilgal einn, 24  konungurinn í Tirsa einn, alls 31 konungur.

Neðanmáls

Það er, Dauðahafs.
Það er, Genesaretvatni (Galíleuvatni).