Jósúabók 16:1–10

  • Erfðaland afkomenda Jósefs (1–4)

  • Erfðaland Efraíms (5–10)

16  Landið sem kom í hlut+ afkomenda Jósefs+ náði frá Jórdan við Jeríkó að vatnslindunum austan við hana, um óbyggðirnar sem liggja frá Jeríkó upp í fjalllendið við Betel.+  Það náði frá Betel, sem tilheyrir Lús, að landamærum Arkíta við Atarót.  Þaðan lá það til vesturs að landamærum Jafletíta allt að landi Neðri-Bet Hóron+ og Geser+ og að lokum til sjávar.  Afkomendur Jósefs,+ þeir Manasse og Efraím, fengu nú land sitt til eignar.+  Landamæri afkomenda Efraíms, ætt fyrir ætt, voru þessi: Landamæri þeirra að austanverðu lágu frá Aterót Addar+ að Efri-Bet Hóron+  og þaðan alla leið til sjávar. Frá Mikmetat+ í norðri sveigðu landamærin í austur til Taanat Síló og lágu þaðan austur að Janóka.  Síðan lágu þau frá Janóka niður til Atarót og Naarat, áfram að Jeríkó+ og að lokum að Jórdan.  Frá Tappúa+ lágu landamærin vestur að Kanaá* og að lokum til sjávar.+ Þetta er erfðaland ættkvíslar Efraíms, ætt fyrir ætt.  Afkomendur Efraíms áttu einnig borgir með tilheyrandi þorpum inni á erfðalandi Manasse.+ 10  En þeir hröktu ekki burt Kanverjana sem bjuggu í Geser+ og Kanverjar búa því meðal Efraímíta enn þann dag í dag+ og eru látnir vinna nauðungarvinnu.+

Neðanmáls

Eða „Kanaflóðdal“. Sjá orðaskýringar, „flóðdalur“.