Jósúabók 18:1–28

  • Lokið við að skipta landinu í Síló (1–10)

  • Erfðaland Benjamíns (11–28)

18  Allur söfnuður Ísraelsmanna safnaðist síðan saman í Síló+ og reisti samfundatjaldið þar.+ Ísraelsmenn höfðu nú lagt landið undir sig.+  Enn voru þó sjö ættkvíslir sem höfðu ekki fengið úthlutað erfðahlut sínum.  Jósúa sagði þá við Ísraelsmenn: „Hversu lengi ætlið þið að fresta því að taka til eignar landið sem Jehóva, Guð forfeðra ykkar, hefur gefið ykkur?+  Veljið þrjá menn af hverri ættkvísl sem ég get sent. Þeir eiga að fara um landið og kortleggja það til að skipta því í erfðahluti. Síðan eiga þeir að snúa aftur til mín.  Þeir skulu skipta því á milli sín í sjö hluta.+ Júda á að búa á svæði sínu í suðri+ og afkomendur Jósefs á svæði sínu í norðri.+  Kortleggið landið og skiptið því í sjö hluta. Látið mig fá lýsingu á því og ég varpa síðan hlutkesti+ fyrir ykkur frammi fyrir Jehóva Guði okkar.  Levítarnir fá þó engan hlut meðal ykkar+ því að prestdómur Jehóva er erfðahlutur þeirra,+ og Gað, Rúben og hálf ættkvísl Manasse+ hafa þegar fengið erfðahlut sinn austan við Jórdan, landið sem Móse þjónn Jehóva gaf þeim.“  Mennirnir sem áttu að kortleggja landið bjuggust til ferðar og Jósúa gaf þeim þessi fyrirmæli: „Farið um landið, kortleggið það og komið svo aftur hingað til mín. Ég varpa þá hlutkesti fyrir ykkur frammi fyrir Jehóva hér í Síló.“+  Mennirnir lögðu þá af stað, fóru um landið og kortlögðu það í sjö hlutum, borg fyrir borg. Þeir skrifuðu lýsingu á því í bók og sneru síðan aftur til Jósúa í búðunum í Síló. 10  Jósúa varpaði þá hlutkesti fyrir Ísraelsmenn í Síló frammi fyrir Jehóva+ og skipti landinu milli þeirra þannig að hver ættkvísl fékk sinn hlut.+ 11  Fyrst kom upp hlutur ættkvíslar Benjamíns og ættir hennar hlutu landsvæði milli Júdamanna+ og afkomenda Jósefs.+ 12  Norðan megin lágu landamærin frá Jórdan upp að hlíðinni norðan við Jeríkó,+ þaðan í vestur upp á fjallið og áfram að óbyggðunum við Betaven.+ 13  Þaðan lágu landamærin til Lús, að hlíðinni sunnan við Lús, það er Betel.+ Þau lágu síðan niður til Aterót Addar+ á fjallinu suður af Neðri-Bet Hóron.+ 14  Vestan megin voru landamærin dregin í sveig til suðurs frá fjallinu sem er sunnan við Bet Hóron og náðu til Kirjat Baal, það er Kirjat Jearím,+ sem er borg í Júda. Þetta eru vesturlandamærin. 15  Suðurlandamærin lágu frá útjaðri Kirjat Jearím og teygðu sig í vesturátt. Þau lágu að Neftóalind.+ 16  Landamærin lágu niður að rótum fjallsins sem snýr að Hinnomssonardal+ og eru í norðanverðum Refaímdal,*+ og þaðan niður í Hinnomsdal, að brekkunni sunnan við borg Jebúsíta+ og að Rógellind.+ 17  Þau lágu í norðurátt að Semeslind og síðan út að Gelílót, sem er á móts við Adúmmímbrekku,+ og þaðan niður að steini+ Bóhans+ Rúbenssonar. 18  Þau lágu áfram að norðurbrekkunni gegnt Araba og niður til Araba. 19  Þaðan lágu landamærin að brekkunni norðan við Bet Hogla+ og þau enduðu við ósa Jórdanar í víkinni nyrst í Saltasjó.*+ Þetta voru suðurlandamærin. 20  Austurlandamærin lágu meðfram Jórdan. Þetta var erfðalandið sem ættir afkomenda Benjamíns fengu og landamæri þess á allar hliðar. 21  Borgirnar sem ættirnar í ættkvísl Benjamíns fengu voru: Jeríkó, Bet Hogla, Emek Kesís, 22  Bet Araba,+ Semaraím, Betel,+ 23  Avítar, Para, Ofra, 24  Kefar Ammóní, Ofní og Geba+ – 12 borgir ásamt tilheyrandi þorpum. 25  Gíbeon,+ Rama, Beerót, 26  Mispe, Kefíra, Mósa, 27  Rekem, Jirpeel, Tarala, 28  Sela,+ Elef, Jebúsí, það er Jerúsalem,+ Gíbea+ og Kirjat – 14 borgir ásamt tilheyrandi þorpum. Þetta var erfðalandið sem ættir afkomenda Benjamíns fengu.

Neðanmáls

Eða „á norðanverðri Refaímsléttu“.
Það er, Dauðahafi.