Jósúabók 21:1–45
21 Ættarhöfðingjar Levítanna gengu nú fram fyrir Eleasar+ prest, Jósúa Núnsson og ættarhöfðingja ættkvísla Ísraels
2 í Síló+ í Kanaanslandi og sögðu: „Jehóva gaf þau fyrirmæli fyrir milligöngu Móse að við skyldum fá borgir til að búa í ásamt beitilandi þeirra handa búfénaði okkar.“+
3 Ísraelsmenn gáfu þá Levítunum borgir+ ásamt beitilandi af sínu eigin erfðalandi eftir fyrirmælum Jehóva.+
4 Fyrst kom upp hlutur ætta Kahatíta.+ Levítarnir sem voru afkomendur Arons prests fengu með hlutkesti 13 borgir frá ættkvíslum Júda,+ Símeons+ og Benjamíns.+
5 Öðrum Kahatítum var úthlutað* tíu borgum frá ættunum í ættkvísl Efraíms,+ ættkvísl Dans og hálfri ættkvísl Manasse.+
6 Gersonítum+ var úthlutað 13 borgum frá ættunum í ættkvísl Íssakars, ættkvísl Assers, ættkvísl Naftalí og hálfri ættkvísl Manasse í Basan.+
7 Ættir Meraríta+ fengu 12 borgir frá ættkvíslum Rúbens, Gaðs og Sebúlons.+
8 Ísraelsmenn gáfu sem sagt Levítunum þessar borgir ásamt beitilöndum með hlutkesti eins og Jehóva hafði gefið fyrirmæli um fyrir milligöngu Móse.+
9 Frá ættkvísl Júda og ættkvísl Símeons gáfu þeir borgirnar sem hér eru nefndar.+
10 Þær voru gefnar sonum Arons sem voru af ættum Kahatíta meðal Levítanna því að þeirra hlutur kom fyrst upp.
11 Þeir fengu Kirjat Arba+ (Arba var faðir Anaks), það er Hebron,+ í fjalllendi Júda og beitilöndin í kring.
12 En Kaleb Jefúnneson fékk landið og þorpin í kringum borgina til eignar.+
13 Sonum Arons prests gáfu þeir Hebron,+ sem var griðaborg fyrir manndrápara,+ ásamt beitilöndum hennar, Líbna+ með beitilöndum,
14 Jattír+ með beitilöndum, Estemóa+ með beitilöndum,
15 Hólon+ með beitilöndum, Debír+ með beitilöndum,
16 Aín+ með beitilöndum, Júta+ með beitilöndum og Bet Semes með beitilöndum – níu borgir frá þessum tveim ættkvíslum.
17 Og frá ættkvísl Benjamíns: Gíbeon+ með beitilöndum, Geba með beitilöndum,+
18 Anatót+ með beitilöndum og Almón með beitilöndum – fjórar borgir.
19 Alls fengu prestarnir, afkomendur Arons, 13 borgir ásamt beitilöndum.+
20 Aðrar ættir Kahatíta meðal Levítanna fengu með hlutkesti borgir frá ættkvísl Efraíms.
21 Þeir fengu Síkem,+ sem var griðaborg fyrir manndrápara,+ ásamt beitilöndum hennar í fjalllendi Efraíms, Geser+ með beitilöndum,
22 Kibsaím með beitilöndum og Bet Hóron+ með beitilöndum – fjórar borgir.
23 Frá ættkvísl Dans: Elteke með beitilöndum, Gibbeton með beitilöndum,
24 Ajalon+ með beitilöndum og Gat Rimmon með beitilöndum – fjórar borgir.
25 Og frá hálfri ættkvísl Manasse: Taanak+ með beitilöndum og Gat Rimmon með beitilöndum – tvær borgir.
26 Alls fengu aðrar ættir Kahatíta tíu borgir ásamt beitilöndum þeirra.
27 Gersonítar+ meðal ætta Levítanna fengu frá hálfri ættkvísl Manasse borgirnar Gólan+ í Basan, sem var griðaborg fyrir manndrápara, ásamt beitilöndum hennar og Beestera með beitilöndum – tvær borgir.
28 Frá ættkvísl Íssakars:+ Kisjon með beitilöndum, Daberat+ með beitilöndum,
29 Jarmút með beitilöndum og En Ganním með beitilöndum – fjórar borgir.
30 Frá ættkvísl Assers:+ Míseal með beitilöndum, Abdón með beitilöndum,
31 Helkat+ með beitilöndum og Rehób+ með beitilöndum – fjórar borgir.
32 Og frá ættkvísl Naftalí: Kedes+ í Galíleu, sem var griðaborg+ fyrir manndrápara, ásamt beitilöndum hennar, Hammót Dór með beitilöndum og Kartan með beitilöndum – þrjár borgir.
33 Alls fengu ættir Gersoníta 13 borgir ásamt beitilöndum.
34 Ættir Meraríta,+ þeir Levítar sem eftir voru, fengu frá ættkvísl Sebúlons:+ Jokneam+ með beitilöndum, Karta með beitilöndum,
35 Dimna með beitilöndum og Nahalal+ með beitilöndum – fjórar borgir.
36 Frá ættkvísl Rúbens: Beser+ með beitilöndum, Jahas með beitilöndum,+
37 Kedemót með beitilöndum og Mefaat með beitilöndum – fjórar borgir.
38 Og frá ættkvísl Gaðs:+ Ramót í Gíleað,+ sem var griðaborg fyrir manndrápara, ásamt beitilöndum hennar, Mahanaím+ með beitilöndum,
39 Hesbon+ með beitilöndum og Jaser+ með beitilöndum – alls fjórar borgir.
40 Alls var ættum Meraríta, þeim sem eftir voru af Levítunum, úthlutað 12 borgum.
41 Borgir Levítanna á landi Ísraelsmanna voru alls 48 ásamt beitilöndum þeirra.+
42 Hver þessara borga var með beitilönd umhverfis – það átti við um allar borgirnar.
43 Jehóva gaf Ísrael allt landið sem hann hafði svarið að gefa forfeðrum þeirra+ og þeir lögðu það undir sig og settust þar að.+
44 Jehóva veitti þeim líka frið í öllu landinu eins og hann hafði svarið forfeðrum þeirra+ og enginn af óvinum þeirra gat staðist fyrir þeim.+ Jehóva gaf alla óvini í hendur þeirra.+
45 Ekkert* brást af öllum þeim góðu loforðum sem Jehóva hafði gefið Ísraelsmönnum – þau rættust öll.+