Jósúabók 3:1–17

  • Ísraelsmenn fara yfir Jórdan (1–17)

3  Jósúa fór snemma á fætur morguninn eftir og lagði af stað frá Sittím+ ásamt öllum Ísraelsmönnum og kom að Jórdan. Þeir voru þar um nóttina áður en þeir fóru yfir ána.  Þrem dögum síðar fóru umsjónarmennirnir+ um búðirnar  og gáfu fólkinu þessi fyrirmæli: „Um leið og þið sjáið Levítaprestana+ bera sáttmálsörk Jehóva Guðs ykkar skuluð þið leggja af stað og fara á eftir henni.  En haldið ykkur í um það bil 2.000 álna* fjarlægð frá henni, komið ekki nær henni en það. Þá vitið þið hvaða leið þið eigið að fara en þið hafið ekki farið hana áður.“  Jósúa sagði nú við fólkið: „Helgið ykkur+ því að á morgun ætlar Jehóva að vinna máttarverk á meðal ykkar.“+  Síðan sagði Jósúa við prestana: „Takið sáttmálsörkina+ og farið fram fyrir fólkið.“ Þeir tóku þá sáttmálsörkina og gengu fram fyrir fólkið.  Jehóva sagði nú við Jósúa: „Frá og með deginum í dag ætla ég að upphefja þig í augum alls Ísraels+ svo að menn viti að ég verð með þér+ eins og ég var með Móse.+  Gefðu prestunum sem bera sáttmálsörkina þessi fyrirmæli: ‚Þegar þið komið að Jórdan skuluð þið vaða út í ána og nema staðar nálægt bakkanum.‘“+  Því næst sagði Jósúa við Ísraelsmenn: „Komið og heyrið orð Jehóva Guðs ykkar.“ 10  Síðan sagði hann: „Af þessu skuluð þið sjá að lifandi Guð er á meðal ykkar+ og að hann mun vissulega hrekja burt undan ykkur Kanverja, Hetíta, Hevíta, Peresíta, Gírgasíta, Amoríta og Jebúsíta:+ 11  Sáttmálsörk Drottins allrar jarðarinnar fer á undan ykkur út í Jórdan. 12  Veljið nú 12 menn af ættkvíslum Ísraels, einn af hverri,+ 13  og um leið og prestarnir sem bera örk Jehóva, Drottins allrar jarðarinnar, stíga fæti í vatn Jórdanar mun rennslið stöðvast ofar í ánni og vatnið standa þar eins og stífluveggur.“+ 14  Þegar fólkið hélt af stað úr tjöldum sínum til að fara yfir Jórdan fóru prestarnir sem báru sáttmálsörkina+ á undan. 15  Og prestarnir sem báru örkina komu að Jórdan og stigu út í vatnið (en Jórdan flæðir yfir bakka sína+ allan uppskerutímann). 16  Þá stöðvaðist rennslið ofar í ánni. Vatnið stóð eins og stífluveggur langt frá þeim, við borgina Adam sem er í grennd við Saretan, en vatnið sem rann í átt að Arabavatni, það er Saltasjó,* rann til þurrðar. Rennslið stöðvaðist og fólkið fór yfir ána á móts við Jeríkó. 17  Meðan prestarnir sem báru sáttmálsörk Jehóva stóðu kyrrir á þurru+ í miðri Jórdan fóru Ísraelsmenn yfir hana þurrum fótum+ þar til öll þjóðin var komin yfir.

Neðanmáls

Um 890 m. Sjá viðauka B14.
Það er, Dauðahafi.