Jobsbók 4:1–21
4 Þá sagði Elífas+ Temaníti:
2 „Þolirðu að hlusta ef einhver talar við þig?
Hver fær samt orða bundist?
3 Þú hefur vissulega leiðbeint mörgumog styrkt máttvana hendur.
4 Orð þín reistu á fætur þá sem hrösuðuog þú styrktir þá sem voru að kikna í hnjánum.
5 En nú verður þú sjálfur fyrir því og þú bugast,*það snertir þig og þú missir kjarkinn.
6 Finnurðu ekki traust í guðhræðslunni?
Veitir ekki ráðvendnin+ þér von?
7 Hugsaðu málið: Hefur saklaus maður nokkurn tíma glatast?
Hvenær hefur réttlátum manni verið tortímt?
8 Það er mín reynsla að þeir sem plægja* illskuog þeir sem sá vandræðum uppskera samkvæmt því.
9 Guð andar á þá og þeir hverfa,reiði hans blossar og þeir líða undir lok.
10 Ljónið öskrar og ungljón urraren jafnvel sterkustu ljón brjóta tennurnar.
11 Ljónið deyr ef engin er bráðinog ljónshvolparnir tvístrast.
12 Mér barst orð í leyniog hvíslað var í eyra mér.
13 Uggvænlegar hugsanir sóttu á mig út frá nætursýnmeðan fólk var í fastasvefni.
14 Ég hríðskalf af óttaog bein mín nötruðu.
15 Andi straukst við andlit mitt,hárin risu á líkama mínum.
16 Síðan stóð hann kyrren ég gat ekki greint útlit hans.
Einhver vera var fyrir augum mér.
Allt var hljótt en síðan heyrði ég rödd:
17 ‚Getur dauðlegur maður verið réttlátari en Guð?
Getur maður verið hreinni en skapari hans?‘
18 Hann treystir ekki þjónum sínumog finnur jafnvel að englum* sínum,
19 hvað þá þeim sem búa í leirhúsum,þeim sem eru myndaðir úr mold+og hægt er að kremja eins og mölflugu!
20 Þeir eru til að morgni en eru kramdir fyrir kvöld.
Þeir hverfa fyrir fullt og allt og enginn saknar þeirra.
21 Eru þeir ekki eins og tjald þegar stögunum er kippt burt?
Þeir deyja í vanvisku sinni.