Malakí 4:1–6
4 „Dagurinn kemur logandi eins og eldsofn.+ Þá verða allir hrokagikkir og allir illvirkjar eins og hálmstrá. Dagurinn sem kemur mun brenna þá,“ segir Jehóva hersveitanna, „svo að hvorki rót né grein verður eftir af þeim.
2 En á ykkur sem virðið* nafn mitt mun sól réttlætisins skína með græðandi geislum* sínum og þið munuð leika ykkur eins og holdmiklir kálfar.“
3 „Þið munuð troða hina illu undir fótum því að þeir verða eins og ryk undir iljum ykkar daginn sem ég læt til skarar skríða,“ segir Jehóva hersveitanna.
4 „Munið eftir lögum Móse þjóns míns, þeim ákvæðum og fyrirmælum sem ég fól honum við Hóreb handa öllum Ísrael.+
5 Ég sendi Elía spámann til ykkar+ áður en hinn mikli og magnþrungni dagur Jehóva kemur.+
6 Hann mun gera hjörtu feðra eins og hjörtu sona+ og hjörtu sona eins og hjörtu feðra* svo að ég slái ekki jörðina og helgi hana eyðingu* þegar ég kem.“
Neðanmáls
^ Orðrétt „óttist“.
^ Orðrétt „vængjum“.
^ Eða „snúa hjörtum feðra til sona og hjörtum sona til feðra“.
^ Sjá orðaskýringar.