Nehemíabók 1:1–11

  • Fréttir frá Jerúsalem (1–3)

  • Bæn Nehemía (4–11)

1  Frásögn Nehemía*+ Hakalíasonar: Ég var staddur í virkisborginni* Súsa+ í kíslevmánuði* á 20. árinu.  Þá kom Hananí,+ einn bræðra minna, ásamt öðrum frá Júda. Ég spurði þá um Gyðingana sem höfðu snúið aftur úr útlegðinni+ og um ástandið í Jerúsalem.  Þeir svöruðu: „Þeir sem sneru aftur úr útlegðinni og búa í skattlandinu lifa við skelfilegar aðstæður og eru niðurlægðir.+ Múrar Jerúsalem eru í rústum+ og hliðin hafa verið brennd.“+  Um leið og ég heyrði þetta settist ég niður og grét. Ég syrgði dögum saman, fastaði+ og bað til Guðs himnanna.  Ég sagði: „Jehóva, Guð himnanna, þú mikli og mikilfenglegi Guð sem heldur sáttmálann og sýnir þeim tryggan kærleika sem elska þig og halda boðorð þín.+  Leggðu við hlustir og hafðu augun opin. Hlustaðu á bæn mína, þjóns þíns, sem ég bið til þín í dag. Ég bið dag og nótt+ fyrir þjónum þínum, Ísraelsmönnum, og játa þær syndir sem þeir hafa drýgt gegn þér. Við höfum syndgað, bæði ég og ætt föður míns.+  Við höfum komið illa fram við þig+ og ekki fylgt þeim boðorðum, ákvæðum og úrskurðum sem þú lagðir fyrir Móse þjón þinn.+  Ég bið þig, mundu eftir því sem þú sagðir við* Móse þjón þinn: ‚Ef þið reynist ótrúir tvístra ég ykkur meðal þjóðanna.+  En ef þið snúið aftur til mín, haldið boðorð mín og hlýðið þeim mun ég safna ykkur aftur saman þó að þið hafið tvístrast allt til endimarka himinsins.+ Ég mun flytja ykkur til staðarins þar sem ég hef valið að láta nafn mitt búa.‘+ 10  Þeir eru þjónar þínir og fólk þitt sem þú leystir með miklum mætti þínum og máttugri hendi.+ 11  Jehóva, viltu heyra bæn þjóns þíns og bæn þjóna þinna sem hafa yndi af að sýna nafni þínu virðingu. Veittu þjóni þínum velgengni í dag og megi þessi maður* sýna mér meðaumkun.“+ Ég var drykkjarþjónn konungs á þeim tíma.+

Neðanmáls

Sem þýðir ‚Jah hughreystir‘.
Eða „höllinni“.
Eða „þeirri viðvörun sem þú gafst“.
Það er, konungurinn.