Nehemíabók 12:1–47

  • Prestar og Levítar (1–26)

  • Múrarnir vígðir (27–43)

  • Stuðningur við þjónustuna í musterinu (44–47)

12  Þetta eru prestarnir og Levítarnir sem komu með Serúbabel+ Sealtíelssyni+ og Jesúa:+ Seraja, Jeremía, Esra,  Amarja, Mallúk, Hattús,  Sekanja, Rehúm, Meremót,  Iddó, Ginntóí, Abía,  Míjamín, Maadja, Bilga,  Semaja, Jójaríb, Jedaja,  Sallú, Amók, Hilkía og Jedaja. Þetta eru þeir sem voru yfir prestunum og bræðrum þeirra á dögum Jesúa.  Levítarnir voru Jesúa, Binnúí, Kadmíel,+ Serebja, Júda og Mattanja+ sem stjórnaði þakkarsöngnum ásamt bræðrum sínum.  Og Bakbúkja og Únní bræður þeirra stóðu andspænis þeim og héldu vörð.* 10  Jesúa eignaðist Jójakím, Jójakím eignaðist Eljasíb+ og Eljasíb Jójada.+ 11  Jójada eignaðist Jónatan og Jónatan eignaðist Jaddúa. 12  Þetta voru höfðingjar prestaættanna á dögum Jójakíms: Meraja fyrir ætt Seraja,+ Hananja fyrir ætt Jeremía, 13  Mesúllam fyrir ætt Esra,+ Jóhanan fyrir ætt Amarja, 14  Jónatan fyrir ætt Mallúkí, Jósef fyrir ætt Sebanja, 15  Adna fyrir ætt Haríms,+ Helkaí fyrir ætt Merajóts, 16  Sakaría fyrir ætt Iddós, Mesúllam fyrir ætt Ginnetóns, 17  Síkrí fyrir ætt Abía,+* fyrir ætt Minjamíns, Piltaí fyrir ætt Módaja, 18  Sammúa fyrir ætt Bilga,+ Jónatan fyrir ætt Semaja, 19  Matnaí fyrir ætt Jójaríbs, Ússí fyrir ætt Jedaja,+ 20  Kallaí fyrir ætt Sallaí, Eber fyrir ætt Amóks, 21  Hasabja fyrir ætt Hilkía og Netanel fyrir ætt Jedaja. 22  Ættarhöfðingjar Levítanna og prestanna á dögum Eljasíbs, Jójada, Jóhanans og Jaddúa+ voru skráðir, allt til stjórnartíðar Daríusar hins persneska. 23  Levítar sem voru ættarhöfðingjar voru skráðir í annálabókina, allt fram á daga Jóhanans Eljasíbssonar. 24  Höfðingjar Levítanna voru Hasabja, Serebja og Jesúa+ Kadmíelsson.+ Bræður þeirra stóðu andspænis þeim, lofuðu Guð og þökkuðu honum, varðhópur hjá varðhópi, í samræmi við fyrirmæli Davíðs+ sem var maður hins sanna Guðs. 25  Mattanja,+ Bakbúkja, Óbadía, Mesúllam, Talmón og Akkúb+ voru hliðverðir+ og vöktuðu geymslurnar við hliðin. 26  Þeir voru uppi á dögum Jójakíms Jesúasonar,+ sonar Jósadaks, og á dögum Nehemía landstjóra og Esra,+ prests og afritara.* 27  Þegar múrar Jerúsalem voru vígðir var leitað að Levítunum alls staðar þar sem þeir bjuggu og komið með þá til Jerúsalem til að halda vígsluhátíð með fögnuði og þakkarsöng+ þar sem leikið yrði á málmgjöll, strengjahljóðfæri og hörpur. 28  Útlærðir söngvarar* söfnuðust saman frá héraðinu,* frá öllu svæðinu í kringum Jerúsalem, frá þorpum Netófatíta,+ 29  frá Bet Gilgal+ og frá sveitunum kringum Geba+ og Asmavet,+ en þeir höfðu byggt sér bæi allt í kringum Jerúsalem. 30  Prestarnir og Levítarnir hreinsuðu sig, og þeir hreinsuðu líka fólkið,+ hliðin+ og múrinn.+ 31  Síðan lét ég höfðingja Júda fara upp á múrinn. Ég stillti upp tveim fjölmennum kórum til að syngja þakkarsöngva og tveim hópum sem áttu að fylgja þeim. Annar kórinn gekk til hægri á múrnum í átt að Öskuhliðinu.+ 32  Hósaja og helmingurinn af höfðingjum Júda gengu á eftir þeim 33  ásamt Asarja, Esra, Mesúllam, 34  Júda, Benjamín, Semaja og Jeremía. 35  Með þeim voru nokkrir af sonum prestanna sem léku á lúðra:+ Sakaría Jónatansson, sonar Semaja, sonar Mattanja, sonar Míkaja, sonar Sakkúrs, sonar Asafs,+ 36  og bræður hans Semaja, Asarel, Mílalaí, Gílalaí, Maaí, Netanel, Júda og Hananí en þeir léku á hljóðfæri Davíðs+ sem var maður hins sanna Guðs. Esra+ afritari* gekk á undan þeim. 37  Við Lindarhliðið+ gengu þeir beint áfram yfir tröppurnar+ að Davíðsborg,+ upp hallann á múrnum fyrir ofan hús Davíðs og áfram að Vatnshliðinu+ austan megin. 38  Hinn kórinn sem söng þakkarsöngva gekk í hina áttina* og ég fylgdi honum ásamt hinum helmingi fólksins. Við gengum á múrnum yfir Ofnturninn+ og áfram að Breiðamúr+ 39  og yfir Efraímshliðið,+ áfram að Hliði gömlu borgarinnar+ og að Fiskhliðinu,+ Hananelturni,+ Meaturni og Sauðahliðinu.+ Við námum síðan staðar við Varðmannahliðið. 40  Að lokum tóku báðir kórarnir sér stöðu fyrir framan hús hins sanna Guðs. Ég gerði það líka ásamt helmingi embættismannanna, þeim sem voru með mér, 41  og prestunum Eljakím, Maaseja, Minjamín, Míkaja, Eljóenaí, Sakaría og Hananja sem léku á lúðra 42  og þeim Maaseja, Semaja, Eleasar, Ússí, Jóhanan, Malkía, Elam og Eser. Söngvararnir sungu hátt undir stjórn Jisrahja. 43  Á þeim degi færðu þeir miklar fórnir og glöddust+ því að hinn sanni Guð hafði veitt þeim mikla gleði. Konur og börn glöddust líka+ þannig að fagnaðarlætin í Jerúsalem heyrðust langar leiðir.+ 44  Þennan sama dag voru skipaðir menn til að hafa umsjón með geymslunum+ fyrir framlögin,+ frumgróðann+ og tíundina.+ Þar átti að geyma það sem prestunum og Levítunum+ var ætlað af ökrum borganna samkvæmt lögunum,+ en mikil gleði ríkti í Júda yfir því að prestarnir og Levítarnir skyldu gegna þjónustu sinni. 45  Þeir fóru að sinna störfunum sem Guð þeirra hafði falið þeim og gegna hreinsunarskyldunni, og eins gerðu söngvararnir og hliðverðirnir í samræmi við fyrirmæli Davíðs og Salómons sonar hans, 46  en löngu áður, á dögum Davíðs og Asafs, voru söngvararnir með stjórnendur þegar sungnir voru lofsöngvar og þakkarsöngvar til Guðs.+ 47  Á dögum Serúbabels+ og á dögum Nehemía gáfu Ísraelsmenn söngvurunum+ og hliðvörðunum+ framlög eftir því sem þeir þurftu daglega. Þeir gáfu líka Levítunum+ það sem þeir áttu að fá og Levítarnir gáfu afkomendum Arons það sem þeir áttu að fá.

Neðanmáls

Eða hugsanl. „meðan sungið var“.
Hér virðist falla niður nafn í hebreska textanum.
Eða „fræðimanns“.
Orðrétt „Synir söngvaranna“.
Það er, héraðinu við Jórdan.
Eða „fræðimaður“.
Eða „fyrir framan“.