Orðskviðirnir 15:1–33
15 Milt* svar stöðvar bræði+en hvöss* orð vekja reiði.+
2 Hinir vitru beita tungu sinni af þekkingu+en vitleysan streymir úr munni heimskingjanna.
3 Augu Jehóva eru alls staðarog fylgjast með bæði vondum og góðum.+
4 Ljúf* tunga er lífstré+en ill orð valda vonleysi.*
5 Heimskinginn ber enga virðingu fyrir aga föður síns+en sá sem er skynsamur hlustar á áminningar.+
6 Í húsi hins réttláta eru mikil auðæfien uppskera* hins rangláta steypir honum í ógæfu.+
7 Varir hinna vitru miðla þekkingu+en það gerir hjarta hins heimska ekki.+
8 Jehóva hefur andstyggð á fórn illra manna+en yndi af bæn hinna réttlátu.+
9 Jehóva hefur óbeit á vegi hins rangláta+en elskar þann sem leggur rækt við réttlæti.+
10 Þeim sem yfirgefur rétta braut þykir allur agi vondur*+en sá sem hatar áminningar mun deyja.+
11 Gröfin* og eyðingardjúpið* blasa við Jehóva,+hve miklu fremur hjörtu mannanna!+
12 Hinn háðski elskar ekki þann sem ávítar hann,+hann leitar ekki ráða hjá hinum vitru.+
13 Andlitið ljómar þegar hjartað er glatten hryggð í hjarta veldur sálarkvöl.+
14 Hjarta hins vitra leitar að þekkingu+en munnur hinna fávísu nærist á* heimsku.+
15 Allir dagar hins þjakaða eru slæmir+en sá sem er léttur í lund er alltaf í veislu.+
16 Betra er að eiga lítið og óttast Jehóva+en vera vellauðugur og áhyggjufullur.+
17 Betri er grænmetisréttur með kærleika+en nautasteik* með hatri.+
18 Skapbráður maður vekur deilur+en sá sem er seinn til reiði stillir þrætur.+
19 Vegur hins lata er eins og þyrnigerði+en braut hinna réttlátu er slétt.+
20 Vitur sonur gleður föður sinn+en heimskinginn fyrirlítur móður sína.+
21 Sá sem skortir skynsemi hefur ánægju af heimsku+en hygginn maður gengur beint áfram.+
22 Áformin bregðast séu málin ekki rædden allt fer vel ef ráðgjafarnir eru margir.+
23 Sá gleðst sem svarar vel*+og hvað er betra en orð á réttum tíma!+
24 Vegur lífsins liggur upp á við fyrir hinn vitra+svo að hann lendi ekki niðri í gröfinni.*+
25 Jehóva rífur niður hús hins hrokafulla+en stendur vörð um landamörk ekkjunnar.+
26 Jehóva hefur andstyggð á ráðabruggi hins vonda+en vingjarnleg orð gleðja hann.+
27 Sá sem aflar illa fengins gróða leiðir óhamingju* yfir fjölskyldu sína+en sá sem hatar mútur mun lifa.+
28 Hinn réttláti hugsar sig um áður en hann svarar*+en illskan streymir úr munni vondra manna.
29 Jehóva er fjarlægur hinum vonduen heyrir bænir réttlátra.+
30 Glaðlegt augnaráð* gleður hjartað,góðar fréttir styrkja* beinin.+
31 Sá sem hlustar á lífgefandi áminningará heima meðal hinna vitru.+
32 Sá sem hafnar aga fyrirlítur líf sitt+en sá sem hlustar á áminningar eykur skilning sinn.+
33 Að óttast Jehóva er þjálfun í visku+og auðmýkt leiðir til virðingar.+
Neðanmáls
^ Eða „særandi“.
^ Eða „Vingjarnlegt“.
^ Eða „Græðandi“.
^ Orðrétt „kremja andann“.
^ Eða „gróði“.
^ Eða „strangur“.
^ Á hebr. Sheol, það er, sameiginleg gröf mannkyns. Sjá orðaskýringar.
^ Eða „Abaddón“.
^ Eða „sækist eftir“.
^ Orðrétt „alinaut“.
^ Orðrétt „Gleði hlýtur maðurinn af svari munns síns“.
^ Á hebr. Sheol, það er, sameiginleg gröf mannkyns. Sjá orðaskýringar.
^ Eða „skömm“.
^ Eða „íhugar vandlega hverju svara skuli; hugsar áður en hann talar“.
^ Orðrétt „Björt augu“.
^ Orðrétt „fita“.