Prédikarinn 4:1–16
4 Ég beindi athygli minni aftur að allri þeirri kúgun sem viðgengst undir sólinni. Ég sá tár hinna kúguðu en enginn huggaði þá.+ Kúgarar þeirra fóru með völdin og það var enginn sem huggaði þá.
2 Ég taldi hina dánu lánsama af því að þeir sem eru fallnir frá eru betur settir en hinir lifandi.+
3 Hinn ófæddi er þó enn betur settur+ því að hann hefur ekki horft upp á allt hið illa sem gert er undir sólinni.+
4 Ég hef séð hve oft kappsemi* og dugnaður í starfi sprettur af samkeppni.+ Það er líka tilgangslaust og eftirsókn eftir vindi.
5 Heimskinginn krossleggur hendurnar og hold hans tærist upp.+
6 Betri er hnefafylli af hvíld en báðar hendur fullar af striti og eftirsókn eftir vindi.+
7 Ég tók eftir enn einu undir sólinni sem er tilgangslaust:
8 Maður stendur einn, enginn er með honum og hann á hvorki son né bróður. Samt er enginn endir á öllu striti hans og augu hans seðjast aldrei af auðæfum.+ En spyr hann sjálfan sig: ‚Fyrir hvern er ég að strita og neita mér um lífsins gæði‘?+ Það er líka tilgangslaust og ömurlegt hlutskipti.+
9 Betri eru tveir en einn+ því að þeir fá góð laun fyrir strit sitt.*
10 Ef annar þeirra dettur getur hinn reist félaga sinn á fætur. En hvernig fer fyrir þeim sem dettur en hefur engan til að hjálpa sér á fætur?
11 Og ef tveir liggja hlið við hlið er þeim hlýtt en hvernig getur sá sem er einn haldið á sér hita?
12 Hægt er að yfirbuga þann sem er einn en tveir geta haldið velli. Og þrefaldan þráð er ekki auðvelt að slíta.
13 Betri er fátækur og vitur unglingur en gamall og heimskur konungur+ sem hefur ekki lengur vit á að hlusta á viðvaranir.+
14 Hann* kom út úr fangelsi og varð konungur+ þó að hann fæddist fátækur+ meðan hinn var við völd.
15 Ég virti fyrir mér alla lifandi menn sem ganga um undir sólinni og sá hvernig gekk hjá unga konunginum sem tók við af hinum.
16 Þótt stuðningsmenn hans hafi verið óteljandi verða þeir sem síðar koma óánægðir með hann.+ Þetta er líka tilgangslaust og eftirsókn eftir vindi.
Neðanmáls
^ Eða „strit“.
^ Eða „hafa meira gagn af striti sínu“.
^ Hugsanlega er átt við vitra unglinginn.