Sálmur 104:1–35
104 Ég vil lofa Jehóva.+
Jehóva Guð minn, mikill ert þú.+
Þú ert klæddur tign og ljóma.+
2 Þú ert sveipaður ljósi+ eins og skikkju,þú þenur út himininn eins og tjalddúk.+
3 Hann leggur bjálka loftstofu sinnar ofar skýjunum,*+gerir skýin að vagni sínum+og fer um á vængjum vindsins.+
4 Hann gerir engla sína að voldugum öndum,þjóna sína að eyðandi eldi.+
5 Hann hefur grundvallað jörðina á undirstöðum hennar,+aldrei að eilífu færist hún úr stað.*+
6 Þú huldir hana djúpum vötnum eins og með skikkju,+vötnin náðu yfir fjöllin.
7 Þau flúðu undan ávítum þínum,+hlupu í skelfingu undan þrumugný þínum
8 – fjöll risu+ og dalir sigu –þangað sem þú hafðir ætlað þeim.
9 Þú settir vötnunum mörk sem þau máttu ekki fara yfir+til að þau skyldu aldrei framar hylja jörðina.
10 Hann sendir vatn í dalina,lindir spretta upp milli fjallanna.
11 Öll dýr merkurinnar drekka úr þeim,villiasnarnir svala þorsta sínum.
12 Fuglar himins eiga sér náttból þar,þeir syngja í laufþykkninu.
13 Þú vökvar fjöllin úr loftstofum þínum,+með ávexti verka þinna seður þú jörðina.+
14 Þú lætur grasið spretta handa nautgripunumog gróður handa mönnunum.+
Þú lætur jörðina gefa af sér fæðu
15 og vín sem gleður hjarta mannsins,+olíu sem gerir andlitið gljáandiog brauð sem nærir hjarta mannsins.+
16 Tré Jehóva fá næga vökvun,sedrustrén í Líbanon sem hann gróðursetti
17 þar sem fuglarnir gera sér hreiður.
Storkurinn+ á sér heimili í einitrjánum.
18 Há fjöllin eru heimkynni fjallageita,+klettarnir eru skjól klettagreifingja.+
19 Þú gerðir tunglið til að afmarka tíma,sólin veit hvenær hún á að setjast.+
20 Þú lætur dimma og það verður nótt+þegar öll villtu skógardýrin fara á kreik.
21 Ungljónin öskra eftir bráð+og leita ætis sem Guð gefur þeim.+
22 Þegar sólin rísdraga þau sig í hlé og leggjast í bæli sín.
23 Maðurinn fer til vinnuog stritar til kvölds.
24 Hversu mörg eru ekki verk þín, Jehóva!+
Þú gerðir þau öll af visku.+
Jörðin er full af því sem þú hefur skapað.
25 Þar er hafið, svo stórt og víðáttumikið,iðandi af lifandi verum, stórum sem smáum.+
26 Þar fara skipin umog Levjatan*+ sem þú skapaðir til að leika sér þar.
27 Þau bíða öll eftir þér,að þú gefir þeim fæðu á réttum tíma.+
28 Þau safna því sem þú gefur þeim.+
Þú lýkur upp hendinni og þau seðjast af góðum gjöfum.+
29 Þú hylur andlit þitt og þau skelfast.
Ef þú tekur burt anda þeirra deyja þau og snúa aftur til moldarinnar.+
30 Ef þú sendir út anda þinn verða þau til+og þú endurnýjar yfirborð jarðar.
31 Dýrð Jehóva varir að eilífu.
Jehóva gleðst yfir verkum sínum.+
32 Hann lítur á jörðina og hún skelfur,hann snertir fjöllin og það rýkur úr þeim.+
33 Ég vil syngja fyrir Jehóva+ alla ævi,ég lofsyng* Guð minn meðan ég lifi.+
34 Megi hugsanir mínar gleðja hann.*
Ég fagna yfir Jehóva.
35 Syndarar munu hverfa af jörðinniog hinir illu verða ekki til framar.+
Ég vil lofa Jehóva. Lofið Jah!*
Neðanmáls
^ Orðrétt „í vötnunum“.
^ Eða „haggast hún“.
^ Sjá orðaskýringar.
^ Eða „leik tónlist fyrir“.
^ Eða hugsanl. „Megi hugleiðingar mínar um hann vera ánægjulegar“.
^ Eða „Hallelúja!“ „Jah“ er stytting nafnsins Jehóva.