Sálmur 129:1–8

  • Ekki yfirbugaður þrátt fyrir árás

    • Þeir sem hata Síon auðmýktir (5)

Uppgönguljóð. 129  „Menn hafa ráðist á mig síðan ég var ungur“+– Ísrael segi nú –   „menn hafa ráðist á mig síðan ég var ungur+en þeir hafa ekki yfirbugað mig.+   Plógmenn hafa plægt yfir bak mitt,+þeir hafa gert plógförin löng.“   En Jehóva er réttlátur.+ Hann hefur skorið á bönd hinna illu.+   Allir sem hata Síonverða auðmýktir og hörfa með skömm.+   Þeir verða eins og gras á húsþakisem visnar áður en það er reytt   og fyllir ekki hönd sláttumannsné fang þess sem bindur í knippi.   Þeir sem fara hjá segja ekki: „Jehóva blessi ykkur. Við blessum ykkur í nafni Jehóva.“

Neðanmáls