Sálmur 19:1–14
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð.
19 Himnarnir segja frá dýrð Guðs,+himinhvolfið greinir frá handaverkum hans.+
2 Orð þeirra streyma fram dag eftir dag,þeir fræða okkur nótt eftir nótt.
3 Rödd þeirra heyrist ekki,ekkert tal, engin orð.
4 En þó berst ómur* þeirra um alla jörðinaog boðskapur þeirra til endimarka heimsbyggðarinnar.*+
Á himni hefur hann reist sólinni tjald.
5 Hún gengur út úr brúðarherbergi sínu eins og brúðgumi,eins og hetja fagnar hún yfir að þeysa sína leið.
6 Hún rís við önnur endimörk himinsog lýkur ferð sinni við hin.+
Geislar hennar ylja allri jörðinni.
7 Lög Jehóva eru fullkomin,+ veita nýjan kraft.+
Áminningar Jehóva eru áreiðanlegar,+ gera hinn óreynda vitran.+
8 Fyrirmæli Jehóva eru réttlát, gleðja hjartað.+
Boðorð Jehóva eru tær, lýsa upp augun.+
9 Óttinn* við Jehóva+ er hreinn, varir að eilífu.
Dómar Jehóva eru sannir, réttlátir á allan hátt.+
10 Þeir eru verðmætari en gull,ógrynni af skíragulli,+og sætari en hunang,+ hunang sem drýpur úr vaxkökunni.
11 Lög þín vara þjón þinn við,+að fylgja þeim hefur mikla blessun í för með sér.+
12 Hver er meðvitaður um eigin mistök?+
Sýknaðu mig af syndum sem ég veit ekki af.
13 Forðaðu þjóni þínum frá hroka,+láttu hann ekki ná tökum á mér.+
Þá verð ég hreinn+og saklaus af alvarlegum syndum.
14 Megi orðin af munni mínum og hugsanir hjarta míns gleðja þig,+Jehóva, klettur minn+ og lausnari.+