Sálmur 2:1–12

  • Jehóva og hans smurði

    • Jehóva hlær að þjóðunum (4)

    • Jehóva krýnir konung sinn (6)

    • Heiðrið soninn (12)

2  Hvers vegna eru þjóðirnar æstarog þjóðflokkar með tilgangslaus áform?+   Konungar jarðarinnar taka sér stöðuog valdhafarnir sameinast sem einn maður*+gegn Jehóva og gegn hans smurða.*+   Þeir segja: „Slítum af okkur fjötra þeirraog köstum frá okkur böndum þeirra!“   Þá hlær Jehóva á himnum,hæðist að þeim úr hásæti sínu.   Hann talar til þeirra í reiði sinni,skelfir þá í bræði sinni.   „Ég hef krýnt konung minn+á Síon,+ mínu heilaga fjalli,“ segir hann.   Ég vil segja frá ákvörðun Jehóva. Hann sagði við mig: „Þú ert sonur minn,+í dag varð ég faðir þinn.+   Biddu mig, og ég skal gefa þér þjóðirnar í arfog alla jörðina til eignar.+   Þú brýtur þær með járnsprota,+mölvar þær eins og leirker.“+ 10  Verið því skynsamir, þið konungar,látið ykkur segjast,* þið dómarar jarðar. 11  Þjónið Jehóva með ótta*og fagnið með lotningu. 12  Heiðrið* soninn+ svo að Guð* reiðist ekkiog þið farist+því að reiði hans getur blossað upp skyndilega. Allir sem leita skjóls hjá honum eru hamingjusamir.

Neðanmáls

Eða „ráðfæra sig hver við annan“.
Eða „Messíasi; Kristi“.
Eða „takið mark á þessari viðvörun“.
Orðrétt „Kyssið“.
Orðrétt „hann“.