Sálmur 32:1–11

  • Þeir sem fá fyrirgefningu eru hamingjusamir

    • ‚Ég játaði synd mína fyrir þér‘ (5)

    • Guð fræðir okkur (8)

Eftir Davíð. Maskíl.* 32  Sá er hamingjusamur sem fær afbrot sín fyrirgefin, syndir sínar huldar.*+   Sá er hamingjusamur sem er saklaus í augum Jehóva,+í hjarta hans eru engin svik.   Meðan ég þagði vesluðust bein mín upp því að ég kveinaði allan daginn.+   Dag og nótt lá hönd* þín þungt á mér,+þrek mitt* þvarr eins og vatn í steikjandi sumarhita. (Sela)   Loks játaði ég synd mína fyrir þérog faldi ekki sekt mína.+ Ég sagði: „Ég vil játa afbrot mín fyrir Jehóva.“+ Og þú fyrirgafst mér sekt mína og synd.+ (Sela)   Þess vegna biðja allir trúfastir til þín+meðan þig er enn að finna.+ Þegar vatnsflóð skellur á nær það ekki til þeirra.   Þú ert mér öruggt skjól,verndar mig í erfiðleikum.+ Þú bjargar mér og umlykur mig fagnaðarópum.+ (Sela)   „Ég fræði þig* og vísa þér veginn sem þú átt að ganga.+ Ég gef þér ráð og hef augun á þér.+   Verið ekki eins og skynlausar skepnur, hestar og múldýr,+sem þarf að temja með beisli og taumiáður en þær geta komið til þín.“ 10  Þjáningar illra manna eru miklaren sá sem treystir Jehóva er umvafinn tryggum kærleika hans.+ 11  Gleðjist yfir Jehóva og fagnið, þið réttlátir,hrópið af gleði, allir hjartahreinir.

Neðanmáls

Eða „fyrirgefnar“.
Eða „vanþóknun“.
Eða „lífsvökvi minn“.
Eða „gef þér skilning“.