Sálmur 34:1–22
Söngljóð eftir Davíð þegar hann þóttist vera genginn af vitinu+ frammi fyrir Abímelek svo að Abímelek rak hann burt og hann fór.
א [alef]
34 Ég vil lofa Jehóva öllum stundum,lof hans sé ávallt á vörum mínum.
ב [bet]
2 Ég hreyki mér af Jehóva,+hinir auðmjúku heyra það og fagna.
ג [gimel]
3 Vegsamið Jehóva með mér,+upphefjum nafn hans í sameiningu.
ד [dalet]
4 Ég leitaði til Jehóva og hann svaraði mér,+hann bjargaði mér frá öllu sem ég óttaðist.+
ה [he]
5 Þeir sem líta til hans ljóma af gleði,þeir munu aldrei hylja andlit sín af skömm.
ז [zajin]
6 Vesæll maður hrópaði og Jehóva heyrði,hann frelsaði hann úr öllum raunum hans.+
ח [het]
7 Engill Jehóva stendur vörð um þá sem óttast hann+og bjargar þeim.+
ט [tet]
8 Finnið* og sjáið að Jehóva er góður,+sá er hamingjusamur sem leitar athvarfs hjá honum.
י [jód]
9 Óttist Jehóva, allir hans heilögu,því að þeir sem óttast hann líða engan skort.+
כ [kaf]
10 Jafnvel sterk ungljón verða hungruðen þeir sem leita Jehóva fara ekki á mis við neitt gott.+
ל [lamed]
11 Komið, synir mínir, hlustið á mig,ég vil kenna ykkur að óttast Jehóva.+
מ [mem]
12 Ef þið elskið lífiðog viljið sjá marga góða daga+
נ [nún]
13 haldið þá tungu ykkar frá illu+og vörum ykkar frá lygi.+
ס [samek]
14 Snúið baki við hinu illa og gerið gott,+þráið frið og keppið eftir honum.+
ע [ajin]
15 Augu Jehóva hvíla á hinum réttlátu+og eyru hans hlusta á grátbeiðni þeirra.+
פ [pe]
16 En Jehóva stendur gegn þeim sem gera illttil að afmá minningu þeirra af jörðinni.+
צ [tsade]
17 Hinir réttlátu hrópuðu og Jehóva heyrði,+hann bjargaði þeim úr öllum raunum þeirra.+
ק [qóf]
18 Jehóva er nálægur hinum sorgbitnu,+hjálpar þeim sem eru niðurbrotnir.*+
ר [res]
19 Hinn réttláti lendir í mörgum raunum+en Jehóva frelsar hann úr þeim öllum.+
ש [shin]
20 Hann verndar öll bein hans,ekki eitt einasta þeirra verður brotið.+
ת [tá]
21 Ógæfa drepur hina vondu,þeir sem hata hinn réttláta verða fundnir sekir.
22 Jehóva bjargar lífi þjóna sinna,enginn sem leitar athvarfs hjá honum verður fundinn sekur.+