Sálmur 97:1–12
97 Jehóva er orðinn konungur!+
Jörðin gleðjist,+allar eyjarnar fagni.+
2 Ský og myrkur umlykja hann,+réttlæti og réttvísi eru grundvöllur hásætis hans.+
3 Eldur fer á undan honum+og eyðir óvinum hans á allar hliðar.+
4 Eldingar hans lýsa upp landið,jörðin sér það og skelfur.+
5 Fjöllin bráðna eins og vax frammi fyrir Jehóva,+frammi fyrir Drottni allrar jarðarinnar.
6 Himnarnir kunngera réttlæti hansog allar þjóðir sjá dýrð hans.+
7 Allir skurðgoðadýrkendur verði sér til skammar,+þeir sem stæra sig af gagnslausum guðum sínum.+
Fallið fram fyrir honum,* allir guðir.+
8 Síon heyrir það og fagnar,+borgir* Júda gleðjastyfir dómum þínum, Jehóva,+
9 því að þú, Jehóva, ert Hinn hæsti yfir allri jörðinni,þú ert hafinn hátt yfir alla aðra guði.+
10 Þið sem elskið Jehóva, hatið það sem er illt.+
Hann verndar líf sinna trúföstu,+hann bjargar þeim úr hendi* hinna illu.+
11 Ljós leiftrar yfir réttláta+og gleði brýst út hjá hinum hjartahreinu.
12 Gleðjist yfir Jehóva, þið réttlátu,og lofið heilagt nafn hans.